

Raheem Sterling, fyrrverandi leikmaður Liverpool, Manchester City og enska landsliðsins, var handtekinn á fimmtudag grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna eftir umferðarslys á M3-hraðbrautinni í Hampshire.
Daily Mail hefur birt myndskeið úr mælaborðsmyndavél annars ökumanns sem sýnir Sterling aka Lamborghini-bifreið sinni með ótryggum hætti skömmu áður en slysið varð. Bíllinn, sem sagður er vera um 270 þúsund punda virði, sést sveigja milli akreina á miklum hraða og fara þvert yfir þrjár akreinar með litlum fyrirvara.

Ökukennari sem tók upp myndskeiðið var á ferð með fjölskyldu sinni þegar atvikið átti sér stað. Hann segir Sterling hafa skipt um akrein án þess að gefa stefnuljós og ítrekað valdið því að aðrir ökumenn þurftu að hægja á sér eða bregðast við akstri hans.
Ex-England footballer Raheem Sterling veers his £270k Lamborghini across three lanes while driving erratically on the M3, minutes before crash
He can be seen with what looks to be a balloon filled with 'hippy crack' as he turns back into the inside lanehttps://t.co/rbklDnj6iC pic.twitter.com/1A43BM7Fl2
— Video Forensics (@Video_Forensics) June 1, 2026
Samkvæmt frásögn vitnisins var Sterling mjög heppinn að missa ekki stjórn á bifreiðinni eða valda alvarlegu slysi. Myndskeiðið var tekið um klukkan 8:45 að morgni, aðeins nokkrum mínútum áður en lögregla stöðvaði Sterling eftir að hann hafði lent á vegriðunum.
Sterling, sem er 31 árs gamall, hefur leikið 82 landsleiki fyrir England og spilað með liðum á borð við Liverpool, Manchester City, Chelsea og Arsenal á ferlinum.