

Markvörður Manchester United, Senne Lammens, hefur verið valinn kaup tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni eftir glæsilegt fyrsta ár sitt á Old Trafford.
Belginn hafði betur í kosningu þar sem nokkrir af mest áberandi nýliðunum í deildinni voru tilnefndir, þar á meðal João Pedro, Granit Xhaka, Rayan Cherki, Adrien Truffert, Viktor Gyökeres, Antoine Semenyo og Dominic Calvert-Lewin.
Lammens kom til Manchester United fyrir tímabilið og sló strax í gegn með öruggri markvörslu og stöðugum frammistöðum. Hann átti stóran þátt í endurreisn United undir stjórn Michael Carrick, en liðið tryggði sér sæti í Meistaradeild Evrópu eftir mikla framför frá fyrra tímabili.
Hinn ungi markvörður hefur vakið athygli fyrir yfirvegun sína, frábær viðbrögð og getu til að stjórna varnarlínunni þrátt fyrir ungan aldur.
Kosningin staðfestir hversu áhrifamikil komu hans til Englands hefur verið. Margir töldu Viktor Gyökeres og João Pedro eiga góða möguleika á verðlaununum eftir markaskorun sína, en Lammens reyndist vinsælasti kosturinn meðal þeirra sem tóku þátt í kjörinu hjá ensku úrvalsdeildinni.