

André Onana er að mæta aftur til Manchester United eftir lánsdvöl sína hjá tyrkneska félaginu Trabzonspor og núverandi áætlun gerir ráð fyrir að markvörðurinn taki þátt í undirbúningstímabilinu undir stjórn Michaels Carrick.
Onana hefur verið á láni hjá Trabzonspor og virðist félagið vera ánægt með framlag hans. Samkvæmt Fabrizio Romano vilja forráðamenn tyrkneska félagsins halda honum áfram og eru tilbúnir að ræða nýjan lánssamning sem myndi gilda fram til sumarsins 2027.
Framtíð markvarðarins er þó ekki endanlega ráðin. Gert er ráð fyrir að viðræður fari fram á næstu vikum milli Manchester United, fulltrúa Onana og Trabzonspor um næstu skref.
Næstu vikur gætu því ráðið miklu um framtíð Kamerúnans, sem bíður nú eftir því að fá skýrari mynd af hlutverki sínu hjá enska stórliðinu.
Ljóst er að Senne Lammens er fyrsti kostur United í markið á næstu leiktíð og Onana vill því fara.