
Manchester United hefur staðfest brottför danska framherjans Rasmus Hojlund frá félaginu.
Hojlund er genginn til Napoli varanlega eftir að hafa verið á láni hjá ítalska félaginu á síðustu leiktíð.
Napoli greiðir um 38 milljónir punda fyrir framherjann, en kaupin gengu í gegn sjálfkrafa í kjölfar þess að liðið tryggði sér sæti í Meistaradeildinni í vor vegna klásúlu í lánssamningnum. Nú hafa þau svo verið gerð formleg.
Hinn 23 ára gamli Hojlund kom að 24 mörkum í 44 leikjum með Napoli á leiktíðinni og var ánægja með frammistöðu hans.
Hojlund kom til United frá Atalanta árið 2023 fyrir 72 milljónir punda en tókst aldrei að standa undir þeim verðmiða.
Rasmus Hojlund has joined Napoli on a permanent transfer.
Everyone at the club would like to wish Rasmus all the very best for the future ✊
— Manchester United (@ManUtd) June 3, 2026