

Ögmundur Kristinsson er að ganga í raðir Víkings samkvæmt því sem fram kom í hlaðvarpinu, Dr. Football í dag.
Víkingur hefur óskað eftir undanþágu á reglum um félagaskipti til að fá inn markvörð. Ástæðan er sú að Ingvar Jónsson, markvörður liðsins er nú að berjast við krabbamein.
Ingvar greindist með krabbamein á dögunum og Víkingar eru því í leit að markverði en Aron Snær Friðriksson hefur staðið vaktina eftir að veikndin komu upp hjá Ingvar.
Ögmundur er samningsbundinn Val en hefur ekki komið við sögu á þessu tímabili og vill Valur losna við hann.
Ögmundur var í landsliðshópi Íslands gegn Japan á sunnudag en búist er við því að KSÍ gefi Víkingum undanþágu fyrir því að fá markvörð inn á næstu dögum.