
Andoni Iraola mun í starfi sínu sem stjóri Liverpool leggja mikla áherslu á að félagið styrki hóp sinn verulega í sumar. ESPN fjallar um málið.
Iraola tekur við af Arne Slot, sem var rekinn um helgina, og hefur hann þegar lagt fram lista yfir fimm leikmenn sem hann vill fá til félagsins.
Þar eru kantmennirnir Bradley Barcola hjá Paris Saint-Germain og Yan Diomande hjá RB Leipzig efstir á blaði, auk Jarrod Bowen sem gæti verið á leið frá West Ham eftir fall félagsins.
Hvað miðjuna varðar hefur Iraola áhuga á Adam Wharton hjá Crystal Palace, en í vörninni er Denzel Dumfries sagður vera á óskalistanum.
Hollendingurinn er með ákvæði í samningi sínum hjá Inter sem gerir honum kleift að fara fyrir rúmar 20 milljónir punda í júlí.
Þá eru leikmenn einnig á leiðinni frá Liverpool. Þegar hefur verið tilkynnt um brottför Mohamed Salah, Andy Robertson og Ibrahima Konate á frjálsri sölu.
Þá hafa menn eins og Alisson, Curtis Jones og Joe Gomez verið orðaðir við brottför.
Iraola hefur gert frábæra hluti sem stjóri Bournemouth síðustu tímabil, en hann kom liðinu í Evrópudeildina á nýafstaðinni leiktíð.