

Liverpool heldur áfram að fylgjast grannt með hinum efnilega Yan Diomande, en óvissa ríkir enn um hvort félaginu takist að fá framherjann frá RB Leipzig í sumar.
Florian Plettenberg hjá Sky Sports Germany segir að Liverpool vinni nú að því að sannfæra leikmanninn um að færa sig til Anfield. Diomande hefur nýlega gengið til liðs við umboðsskrifstofuna Roc Nation Sports International, sem er sögð hafa metnaðarfull áform um næsta skref á ferli hans.
„Áætlunin hjá leikmanninum er að ganga til liðs við eitt af stærstu félögum Evrópu strax í næsta félagaskiptaglugga,“ sagði Plettenberg.
RB Leipzig hefur þó allt aðrar hugmyndir. Forráðamenn félagsins vilja halda í Fílabeinsstrendinginn að minnsta kosti eitt tímabil til viðbótar og vinna nú að því að framlengja samning hans og bæta kjör hans.
Plettenberg greinir frá því að bæði Oliver Mintzlaff, framkvæmdastjóri Leipzig, og Jürgen Klopp, sem hefur áhrif innan Red Bull-samsteypunnar, telji Diomande geta orðið næsta stóra stjarna félagsins.
„Einn af æðstu stjórnendum Leipzig sagði við mig um helgina: ‘Verið rólegir, hann verður 100 prósent áfram hjá okkur’,“ sagði blaðamaðurinn.
Liverpool hefur hins vegar ekki gefist upp. Félagið er sagt þrýsta á um kaup og vinna að munnlegu samkomulagi við leikmanninn. Enn sem komið er hefur þó ekkert samkomulag náðst, hvorki við Diomande né Leipzig.