
Marco Silva er nálægt því að taka við Benfica samkvæmt helstu miðlum.
Silva, sem hefur stýrt Fulham síðan árið 2021, er samningslaus síðar í mánuðinum og hefur enn ekki samþykkt nýtt tilboð frá félaginu.

Viðræður hans við Benfica hafa hins vegar gengið vel síðustu daga og er samkomulag sagt innan seilingar.
Benfica leitar að arftaka Jose Mourinho, sem hefur yfirgefið félagið til að taka við Real Madrid á þriggja ára samningi.
Silva vann ensku B-deildina með Fulham árið 2022 og hefur svo fest liðið þægilega í sessi í úrvalsdeildinni.