
Jurgen Klopp hefur áður farið fögrum orðum um Andoni Iraola, sem er nú að taka við Liverpool eftir brottrekstur Arne Slot.
Iraola hefur gert frábæra hluti sem stjóri Bournemouth. Klopp mætti Spánverjanum þrisvar sinnum á sínum tíma hjá Liverpool og vann alla leikina, en það breytti ekki áliti hans á þjálfaranum.
„Þeir sneru þessu algjörlega við. Vá, hann er alvöru þjálfari,“ sagði Klopp í janúar 2024 þegar Bournemouth hafði náð sér á strik eftir erfiða byrjun tímabilsins.

„Hann fann leið til að byggja upp mjög gott lið. Þeir spila góðan fótbolta, finna réttu lausnirnar á réttum augnablikum og nýta Dominic Solanke á frábæran hátt.“
Klopp hrósaði einnig varnarleik Bournemouth. „Hvernig þeir verjast er mjög gott, þeir eru mjög þéttir.“
Iraola tók við Bournemouth árið 2023 og eftir erfiða byrjun endaði liðið í 12. sæti á fyrsta tímabili hans. Á nýafstaðinni leiktíð endaði liðið í 6. sæti og tryggði sér Evrópudeildarsæti.