

Manchester United er farið af stað í að styrkja hóp sinn fyrir næsta tímabil og hefur nú augastað á tveimur leikmönnum.
Félagið hefur átt viðræður um kaup á Mateus Fernandes frá West Ham. Eftir fall West Ham úr ensku úrvalsdeildinni er talið líklegt að félagið neyðist til að selja lykilmenn sína og þar gæti Fernandes verið á förum.
Frá þessu segir The Athletic.
Þá er Lewis Hall einnig til skoðunar hjá United. Vinstri bakvörðurinn er á mála hjá Newcastle United, sem hefur þó engan sérstakan áhuga á að selja hann.
Newcastle gæti hins vegar íhugað tilboð ef það hjálpar félaginu að fjármagna önnur kaup í sumar.
Samkvæmt Athletic myndi möguleg sala á Hall fara yfir 50 milljónir punda.
Manchester United virðist því ætla að styrkja bæði miðju og varnarlínu fyrir næsta tímabil.