fbpx
Föstudagur 05.júní 2026
Pressan

Vilja fangelsa meintan morðingja Madeleine McCann á ný

Ritstjórn Pressunnar
Fimmtudaginn 4. júní 2026 21:30

Madeleine McCann og Christian Brueckner. Samsett mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Saksóknarar í Þýskalandi ætlar að freista þess að koma Christian Brueckner, sem bresku lögreglunni grunar að hafi myrt Madeleine McCann, aftur á bak við lás og slá. Madeleine McCann hvarf af hótelherbergi í Praia da Luz í maí 2007.

Brueckner var búsettur í Portúgal á þeim tíma og hefur lögreglan í Bretlandi sagt að gögn úr farsímaturni gefi til kynna að hann hafi verið í Praia da Luz kvöldið sem Madeleine hvarf, þar að auki séu til skrár úr grunsamlegu samtali á Skype. Brueckner hefur harðneitað aðkomu sinni að hvarfi McCann.

Brueckner bjó úti í skógi í Þýskalandi síðasta haust þegar tökulið ITV reyndi að ná af honum tali. Skjáskot/ITV

Mikill þrýstingur er á lögregluna að fá hann framseldan til Bretlands fyrir næsta ár þegar 20 ár verða liðin frá hvarfinu. Erfitt er að fá hann framseldan þar sem þýska stjórnarskráin meinar slíkt framsal til landa utan Evrópusambandsins.

Brueckner var fangelsaður í Þýskalandi fyrir að nauðga 72 ára konu, honum var sleppt úr haldi í september í fyrra. Þýska dagblaðið Bild fjallar um tilraun saksóknara í Oldenburg í Þýskalandi til að fá hann aftur í fangelsi. Hann var dæmdur í sex vikna fangelsi í desember 2024 fyrir að kalla fangavörð „tíkarson“, Brueckner áfrýjaði málinu og verður það tekið fyrir í byrjun hausts.

„Saksóknarar í máli Madeleine vita að á meðan hann gengur laus þá er tækifæri fyrir hann að flýja land og láta sig hverfa,“ sagði heimildarmaður Bild. „Ef hann gerir það þá er öll von úti að málið komist fyrir dóm.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Elti 14 ára pilt og skaut hann til bana: Sýknaður eftir að hafa borið fyrir sig sjálfsvörn

Elti 14 ára pilt og skaut hann til bana: Sýknaður eftir að hafa borið fyrir sig sjálfsvörn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fundu lík í tengslum við röð dularfullra mannshvarfa og dauðsfalla meðal bandarískra vísindamanna

Fundu lík í tengslum við röð dularfullra mannshvarfa og dauðsfalla meðal bandarískra vísindamanna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Segir Buckinghamhöll hafa leynt sönnunargögnum gegn Andrew um árabil

Segir Buckinghamhöll hafa leynt sönnunargögnum gegn Andrew um árabil
Pressan
Fyrir 2 dögum

Trump hellti sér yfir Netanyahu og sagði honum til syndanna – „Allir hata þig núna“

Trump hellti sér yfir Netanyahu og sagði honum til syndanna – „Allir hata þig núna“
Pressan
Fyrir 3 dögum

FBI leitar konu sem beitti sína nánustu „ógeðfelldum“ blekkingum

FBI leitar konu sem beitti sína nánustu „ógeðfelldum“ blekkingum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ferðalag fjögurra manna fjölskyldu í brúðkaup breyttist í martröð

Ferðalag fjögurra manna fjölskyldu í brúðkaup breyttist í martröð