fbpx
Fimmtudagur 06.nóvember 2025
Pressan

Myrti móður sína og tók 277 ljósmyndir af hryllingsverknaðinum

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 21. nóvember 2022 22:00

David Sumney. Mynd:Lögreglan

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég skil ekki að ég hafi komið sjálfum mér í þannig ástand að ég gæti gert eitthvað svona slæmt, svona hryllilegt. Ég skil ekki að ég hafi gert þetta, að ég hafi drepið móður mína.“

Þetta sagði David Sumney, 33 ára, um morðið á móður hans en hana myrti hann fyrir þremur árum á heimili hennar í Pennsylvania. Hann pyntaði hana áður en hann drap hana. Hann tók 277 ljósmyndir af þessum hryllilega verknaði.

Fox News skýrir frá þessu. Fram kemur að David hafi smurt blóði móður sinnar á sig sjálfan og síðan stillt sér upp við hlíð líksins til að taka myndir.

Hann játaði fyrir dómi að hafa myrt hana og á þeim grunni gerði saksóknari samning við hann um refsingu hans. Hann þarf að sitja í fangelsi næstu 17 árin hið minnsta.

Fyrir dómi sagðist hann ekki geta hætt að hugsa um það sem hann gerði. „Ég hugsa um það dag hvern. Ég er leiður yfir því en það breytir engu. Ég hegðaði mér eins hræðilega og nokkur manneskja getur gert,“ sagði hann.

Verjandi hans fór fram á að hann yrði aðeins dæmdur í sjö ára fangelsi vegna þess að hann sjái eftir morðinu. En aðrir ættingjar konunnar, og þar með ættingjar David, voru ekki sömu skoðunar og vildu þungan dóm yfir honum. Þeir voru því ekki sáttir þegar samið var um 20 ára fangelsi hið minnsta og 40 ár að hámarki. Þau þrjú ár sem hann hefur setið í gæsluvarðhaldi koma til frádráttar og því getur hann hugsanlega losnað úr fangelsi eftir 17 ár.

Systir hans, Mary Ellen, sagði hann „minna virði en rusl“ og sagðist óska þess að hann „fengi dauðadóm“.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Alræmdur fjöldamorðingi dó í fangelsi á sunnudag

Alræmdur fjöldamorðingi dó í fangelsi á sunnudag
Pressan
Í gær

Viðtal Trump við 60 Minutes veldur fjaðrafoki – Fólk hefur áhyggjur af heilsu hans og minni

Viðtal Trump við 60 Minutes veldur fjaðrafoki – Fólk hefur áhyggjur af heilsu hans og minni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi fréttakona grunuð um voðaverk á hrekkjavökunni

Fyrrverandi fréttakona grunuð um voðaverk á hrekkjavökunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ótrúlegt sakamál í Bretlandi – Bæjarfulltrúi ákærður fyrir að kúga þingmann

Ótrúlegt sakamál í Bretlandi – Bæjarfulltrúi ákærður fyrir að kúga þingmann