fbpx
Mánudagur 09.febrúar 2026
Fréttir

Tveir í gæsluvarðhaldi vegna alvarlegrar líkamsárásar

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 14. janúar 2026 17:21

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tveir karlmenn sitja í gæsluvarðhaldi vegna alvarlegrar líkamsárásar sem framin var í Reykjavík í síðustu viku.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Segir í tilkynningunni að annar mannanna sé á þrítugsaldri en hinn á fimmtugsaldri, og þeir hafi verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald í þágu rannsóknarhagsmuna.

Segir enn fremur að tilkynnt hafi verið um málið síðastliðinn föstudag þegar karlmaður hafi fundist með alvarlega áverka utandyra í austurborginni. Áðurnefndir tveir menn hafi verið handteknir í tengslum við málið sama dag og þeir síðan á laugardag úrskurðaðir í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna til 14. janúar. Gæsluvarðhaldið yfir báðum mönnunum hafi síðan verið framlengt að kröfu lögreglu í héraðsdómi í dag. Yngri maðurinn hafi verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna, en sá eldri í vikulangt gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna.

Hver líðan þolandans er kemur ekki fram í tilkynningunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dæmdur fyrir að áreita fjölda 11-13 ára stúlkna á Snapchat- „Hvernig ertu svona falleg ekki eldri en þetta?“

Dæmdur fyrir að áreita fjölda 11-13 ára stúlkna á Snapchat- „Hvernig ertu svona falleg ekki eldri en þetta?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þrautaganga konu í heilbrigðiskerfinu – Send heim eftir skoðun en ári síðar var staðan orðin skelfileg

Þrautaganga konu í heilbrigðiskerfinu – Send heim eftir skoðun en ári síðar var staðan orðin skelfileg