Brotist inn í kirkju
FréttirMeðal verkefna lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt var innbrot í kirkju en nú í morgun lá ekki fyrir hvort einhverju hefði verið stolið úr kirkjunni, Óskað var eftir aðstoð lögreglu í verslun í Laugardalshverfi í Reykjavík vegna hnupls, málið var afgreitt með vettvangsformi. Afskipti voru höfð af pari sem var að stela úr Lesa meira
Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis
FréttirKæru ónefnds einstaklings til kærunefndar jafnréttismála vegna uppákomu sem varð við setningu Alþingis í september 2024 hefur verið vísað frá. Kærandinn vildi meina að hann hefði verið beittur mismunun af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þegar lögreglumenn hefðu krafist þess að hann myndi lækka í tónlist sem hann var að spila við Austurvöll meðan þingsetningin stóð Lesa meira
Fjölskyldufaðir krafinn um greiðslu skuldar með hótunum og íkveikju – „Maður sefur ekki og fjölskyldan er í molum“ – Myndir
FréttirFjölskyldufaðir á höfuðborgarsvæðinu hefur frá því í byrjun árs sætt reglulega hótunum og skemmdarverkum af hálfu aðila sem segjast vera að rukka hann um skuld fyrirtækis hans við fyrirtæki, í eigu erlends aðila, sem fyrirtæki fjölskylduföðurins var í viðskiptum við áður en það fór í þrot. Fyrr í vikunni gengu þessir aðilar síðan enn lengra Lesa meira
Mætti með haglabyssu á lögreglustöðina
FréttirMaður nokkur mætti vopnaður haglabyssu á lögreglustöðina við Hverfisgötu í Reykjavík fyrr í vikunni en málið leystist þó farsællega og frekari eftirmálar verða ekki af því eins og fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Í tilkynningunni segir að nokkur viðbúnaður hafi orðið fyrr í vikunni á lögreglustöðinni við Hverfisgötu í Reykjavík þegar þangað Lesa meira
Fylgdust með svikahröppum að verki í rauntíma
FréttirLögreglumenn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fylgdust með svikahröppum að verki, í netheimum, í rauntíma fyrr í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögrglunni á höfuðborgarsvæðinu. Í tilkynningunni segir að því miður gerist það ekki oft að endurheimt náist í svikamálum yfir netið en þar skipti tíminn öllu máli. Í dag hafi aðstæður þó verið Lesa meira
Innbrot í leikskóla, líkamsárásir og tilkynningar um hnífaburð og skotárás
FréttirNóg hefur verið um að vera hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu það sem af er degi. Í dagbók lögreglu kemur fram að innbrot hafi verið framið í leikskóla og fataverslun í miðborg Reykjavíkur og munum stolið. Eignaspjöll hafi verið framin sömuleiðis í miðbænum og rán í fataverslun. Í dagbókinn er greint frá tveimur líkamsárásum í Hlíðunum Lesa meira
Stórfelld líkamsárás í Grafarvogi
FréttirNóg var um að vera hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt eins og svo oft áður á föstudagskvöldi og aðfaranótt laugardags. Framið var innbrot og þjófnaður í gistiheimili í miðborg Reykjavíkur. Maður var handtekinn í Múlahverfi grunaður um söludreifingu fíkniefna, peningaþvætti og útlendingalagabrot. Tilkynnt var um slagsmál miðborginni. Tvö voru handtekin grunuð um Lesa meira
Vara við gervigreind sem þykist vera Sigríður Björk
FréttirÍ tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu er varað við svikasímtölum þar sem notast er við gervigreind sem kynnir sig sem Sigríði Björk Guðjóndóttur fyrrverandi ríkislögreglustjóra. Einnig hefur verið varað áður við svikapóstum sem sendir hafa verið undir nafni Sigríðar Bjarkar en svikahrapparnir virðast ekki hafa frétt af starfslokum hennar sem ríkislögreglustjóri. Í nýju tilkynningunni segir Lesa meira
Unglingur tekinn með rafmagnsvopn
FréttirNóg var að um að vera hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt. Meðal þess sem kom til kasta hennar var unglingur með rafmagnsvopn í unglingapartýi. Í dagbók lögreglunnar kemur fram að meðal helstu verkefna á lögreglustöð 1, sem sér um löggæslu í vesturbæ, miðbæ og austurbæ Reykjavíkur auk Seltjarnarness hafi verið eldur í Lesa meira
Tveir í gæsluvarðhaldi vegna alvarlegrar líkamsárásar
FréttirTveir karlmenn sitja í gæsluvarðhaldi vegna alvarlegrar líkamsárásar sem framin var í Reykjavík í síðustu viku. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Segir í tilkynningunni að annar mannanna sé á þrítugsaldri en hinn á fimmtugsaldri, og þeir hafi verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald í þágu rannsóknarhagsmuna. Segir enn fremur að tilkynnt hafi verið Lesa meira
