fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

Eru Rússar að verða uppiskroppa með vopn? Skjóta loftvarnaflaugum á skotmörk á jörðu niðri

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 27. júlí 2022 06:07

Þetta fjölbýlishús í Kyiv skemmdist mikið í árás Rússa. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rússneskar hersveitir hafa að undanförnu skotið S-300 loftvarnaflaugum á skotmörk á jörðu niðri í Úkraínu. Þetta hefur vakið upp vangaveltur um hvort þeir séu að verða uppiskroppa með vopn og skotfæri og glími við vanda varðandi birgðaöflun og birgðaflutninga.

S-300 loftvarnaflaugarnar voru hannaðar til varna gegn loftárásum og árásum með flugskeytum. Þær komu fram á sjónarsviðið 1979.

Daily Mail segir að samkvæmt fréttum frá Úkraínu þá hafi rússneskar hersveitir notað flugskeyti þessarar tegundar til árása á skotmörk á jörðu niðri. Breska varnarmálaráðuneytið segir að þetta bendi til að Rússa bráðvanti vopn til árása á jörðu niðri.

Á fimmtudaginn sagði Vitaly Kim, héraðsstjóri í Mykolaiv, að Rússar hafi skotið sjö S-300 á héraðið og valdið skemmdum á innviðum og sært einn mann.

Þann 8. júlí hafði hann sömu sögu að segja og sagði þá að búið hefði verið að koma GPS-tækjum fyrir á flaugunum til að stýra þeim að skotmörkunum en þær hafi samt sem áður verið ónákvæmar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Erum við sátt við að algóritminn sjái um uppeldið“

„Erum við sátt við að algóritminn sjái um uppeldið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jón Magnús um þráhyggju virkra í athugasemdum – Bólusetningum kennt um allt sem úrskeiðis fer

Jón Magnús um þráhyggju virkra í athugasemdum – Bólusetningum kennt um allt sem úrskeiðis fer