

Bresk brúður, Gemma Monk að nafni, fékk heldur óskemmtilega sendingu frá mágkonu sinni í miðri athöfn. Mágkonan skvetti fötu af svartri málningu yfir hana og hljóp í burtu.
Greint er frá málinu í staðarmiðlinum Kent Online.
„Við vorum búin að bíða svo lengi eftir þessu. Ekkert gat stöðvað okkur,“ sagði Gemma sem er 35 ára gömul. Var hún að giftast unnusta sínum til 20 ára, Ken, þegar þetta óskemmtilega atvik skeði. En saman eiga þau tvö börn.
Athöfnin fór fram utandyra í Maidstone, borg sem liggur suðaustan við London. Gemma var klædd í hvítt, með slör og blómvönd. Hún gekk með með manni sínum fram hjá gestunum til þess að hnýta hnútinn þegar hún fékk skyndilega gusuna yfir sig.
Það næsta sem sást var að kona að nafni Antonia Eastwood, 49 ára sem er gift bróður Ken, tók á rás í burtu á meðan brúðurin fór að hágráta, útötuð í svartri málningu.
Hvorki Gemma né Ken vissu hvaðan á þau stóð veðrið en þau voru staðráðin í að halda athöfninni áfram. Var brúðurin þvegin í framan og fékk annan kjól að láni.
„Ég þurfti ekki að hugsa tvisvar um það. Ég hefði gengi að altarinu í nærbuxunum einum fata og með svarta málningu á smettinu ef ég hefði þurft þess,“ sagði Gemma.
Eins og gefur að skilja þá setti þetta atvik strik í einingu fjölskyldunnar. Gemma segist ekki vita hvers vegna Antonia hafi gert þetta nema að það hafi augljóslega verið til þess að reyna að stöðva brúðkaupið. Gemmu og Antoniu hafi þó lent saman áður.
Var Antonia kærð og dæmd í dómstóli í Maidstone til að dæma Gemmu skaðabætur. En skaðinn var metinn 5 þúsund pund, það er um 830 þúsund krónur.