fbpx
Laugardagur 18.apríl 2026
Pressan

Dýr mistök á opnunardegi pitsastaðar – Greiddu viðskiptavinum fyrir að kaupa pítsu

Pressan
Laugardaginn 18. apríl 2026 16:30

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óhætt er að segja að slæm dýrkeypt mistök hafi verið gerð á opnunardegi pitsastaðar í Starup í Danmörku. Staðurinn opnaði þann 1. apríl og var nóg að gera. Viðskiptavinir streymdu að og sóttu sér pítsu en þeir fóru ekki bara heim með pítsu því þeir fóru heim með meiri pening en þeir tóku með sér.

Ástæðan er að starfsfólkið gerði mistök þegar ýtt var á takka á sjóðvélinni sem heitir „endurgreidd leiðrétting“ og keyrði vélin á þessu allan daginn. Þetta þýddi að þegar fólk bar greiðslukortið sitt upp að posanum, þá var upphæðin, sem það átti að greiða, lögð inn á reikning þess. Þetta þýddi því að viðskiptavinirnir fengu greitt fyrir að kaupa pítsu.

Ahmad Ziad Nouf, sonur eiganda pitsastaðarins (sem heitir Starup Pizzeria), sagði í samtali við TV2 að þegar hann kom á staðinn um kvöldið hafi hann áttað sig á þessu og hafi þá sagt við föður sinn að hann hafi gefið fólki pítsur allan daginn og látið það fá peninga að auki.

Í kjölfarið sendi pitsastaðurinn út ákall til viðskiptavina og útskýrði hvað gerðis og höfðaði til heiðarleika þeirra og hvatti þá til að koma og endurgreiða peninga sem þeir fengu greidda sem og pítsurnar.

Viku síðar hafði staðurinn fengið um helminginn af söluupphæð dagsins til baka, eða sem nemur um 140.000 íslenskum krónum. En það vantaði enn álíka upphæð.

Nú hefur verið gengið þannig frá sjóðvélinni að ekki er svo auðvelt að ýta á „endurgreidd leiðrétting“ takkann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Rekinn korter í HM
Pressan
Í gær

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala
Pressan
Í gær

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Aflimaður fyrir neðan nafla eftir hræðilegt slys – Grætur bara yfir einu

Aflimaður fyrir neðan nafla eftir hræðilegt slys – Grætur bara yfir einu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ný varnarlína Evrópu: Plan B í vinnslu ef Trump yfirgefur NATO

Ný varnarlína Evrópu: Plan B í vinnslu ef Trump yfirgefur NATO
Pressan
Fyrir 3 dögum

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Kviðdómur fékk að heyra hrollvekjandi símtal morðingjans við móður sína

Kviðdómur fékk að heyra hrollvekjandi símtal morðingjans við móður sína
Pressan
Fyrir 4 dögum

Ísraelsmenn brjálaðir út í Spánverja

Ísraelsmenn brjálaðir út í Spánverja