fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Samþykkja íbúðir við Austurvöll en ósammála um skilyrði – „Skipulag af þessu tagi hafi bakað vandræði“

Jakob Snævar Ólafsson
Fimmtudaginn 16. apríl 2026 15:30

Austurvöllur. Aftast á myndinni má sjá bakhlið húsanna þar sem til stendur að innrétta íbúðir. Mynd: Skjáskot/GoogleMaps

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt og vísað til borgarráðs breytingu á deiliskipulagi vegna lóðarinnar nr. 8-14 við Austurstræti í miðborginni. Gengur breytingin meðal annars út á að heimila að íbúðir verði innréttaðar á efri hæðum húsanna, en bakhlið þeirra snýr að Austurvelli. Fulltrúar minnihlutaflokkanna samþykktu breytinguna, með meirihlutanum, en eru þó ekki fyllilega sammála í áherslum sínum um hvernig eigi að tryggja sem best sambýli væntanlegra íbúa í íbúðunum við þá veitinga- og skemmtanastarfsemi sem fari fram á svæðinu. Sumir fulltrúanna lögðu áherslu á að tryggja verði hljóðvist en annar vildi meina að þau sem kaupi sér íbúðir á þessum stað geti ekki búist við rólegheitum.

Gögn um deiliskipulagsbreytinguna sem fylgja fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs opnast ekki og því er ekki ljóst hvort fjallað sé um hljóðvist í skilmálum vegna breytingarinnar.

Í fundargerðinni sjálfri segir að í breytingunni felist meðal annars breytt notkun þannig að leyfðar verði íbúðir á efri hæðum þar sem áður hafi verið skrifstofur, ásamt því að áfram verði heimilt að hafa skrifstofur og/eða veitingarými á efri hæðum eftir atvikum. Einnig verði heimilt að breyta útliti húsanna og setja svalir svo húsnæði uppfylli skilyrði fyrir íbúðir og skyggni yfir útisvæði veitingastaða að Austurvelli. Heimilt verði að breyta núverandi kvistum ásamt því að bæta við kvistum á húsin nr. 12 og 12A.

Hljóð í miðbænum

Samkvæmt fundargerðinni var breytingin samþykkt samhljóða í umhverfis- og skipulagsráði. Fulltrúar minnihlutaflokkanna létu allir frá sér sitt hverja bókunina.

Friðjón R. Friðjónsson fulltrúi Sjálfstæðisflokksins lagði í sinni bókun áherslu á að tryggja sambýli væntanlegra íbúa við þá starfsemi sem fer nú þegar fram á svæðinu, meðal annars í umræddum húsum:

„Mikilvægt er þó að tryggja að samspil íbúa og núverandi starfsemi verði í sátt við umhverfið, enda er um að ræða svæði þar sem umfangsmikil veitinga- og skemmtanastarfsemi fer fram. Reynslan sýnir að skipulag af þessu tagi getur skapað árekstra ef ekki er vel staðið að undirbúningi. Því er brýnt að hljóðvist verði tryggð með fullnægjandi hætti og jafnframt að loftgæði í íbúðum verði þannig að ekki sé nauðsynlegt að opna glugga eða hurðir, til að lágmarka líkur á ónæði og ágreiningi í framtíðinni.“

Aðalsteinn Haukur Sverrisson fulltrúi Framsóknarflokksins var á sömu nótum í sinni bókun:

„Það skal þó benda á að tryggja verði að samspil íbúa í framtíðinni verði í sátt við núverandi umhverfi. Margir veitinga- og skemmtistaðir eru starfandi á neðri hæðum þessa húsnæðis og borgin hefur því miður reynslu á því, miðsvæðis í borginni, að skipulag af þessu tagi hafi bakað vandræði. Því vill fulltrúi Framsóknar árétta mikilvægi þess að tryggja hljóðvist í fyrirhuguðum íbúðum með þeim hætti að það ekki komi til árekstra milli íbúa og rekstraraðila.“

Erlingur Sigvaldason fulltrúi Viðreisnar tók hins vegar annan pól í hæðina en Friðjón og Aðalsteinn en mögulega spilar þar inn í að Erlingur er nokkuð yngri en þeir báðir:

„Um flottan stað fyrir íbúðir að ræða og ættu kaupendum að vera ljóst að þau eru ekki að velja sér stað þar sem hægt er að búast við rólegheitum í hjarta miðbæjarins.“

 

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Með glóðarauga á báðum augum og nefbrot eftir árás á Hverfisgötu

Með glóðarauga á báðum augum og nefbrot eftir árás á Hverfisgötu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“