fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
Fréttir

Birgir gagnrýnir Heimi Má: „Hann er með þessu að spilla ímynd flokksins“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 16. apríl 2026 13:30

Birgir segist telja að engin stemning sé fyrir því í samfélaginu þegar einn flokkur setur sig á háan hest á kostnað annarra.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Birgir Guðmundsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Akureyri, segir að Heimir Már Pétursson, kosningastjóri Flokks fólksins, hafi hlaupið á sig þegar hann afþakkaði boð um að senda oddvita flokksins í Silfrið á RÚV á mánudagskvöld.

Morgunblaðið ræðir við Birgi um málið í dag.

Heimir Már sagði í viðtali við Morgunblaðið í gær að það hafi ekki verið talið „framboðinu til framdráttar að vera í þessum félagsskap sem þarna var“ en auk oddvita Flokks fólksins voru boðaðir frambjóðendur Góðan daginn-framboðsins, Sósíalista og Okkar borgar.

Sjá einnig: Heimir Már afþakkaði boð í Silfrið:„Ég sá þetta sjálfur og mér brá svolítið“

Guðmundur Ingi Þóroddsson er oddviti Flokks fólksins í Reykjavík og viðurkenndi hann að honum hafi brugðið þegar greint var frá því að hann hefði afþakkað boð í þáttinn. Hann hefði nefnilega ekki gert það. Bætti hann við að hann fari þangað sem hann er sendur og allt svona fari í gegnum kosningastjórann.

Birgir er ómyrkur í máli í samtali við Morgunblaðið í dag.

„Hann er með þessu að spilla ímynd flokksins, en ég held að það sé engin stemning fyrir því í samfélaginu þegar einn flokkur setur sig á háan hest á kostnað annarra,“ segir hann meðal annars.

Þá er rætt við Sigfús Aðalsteinsson, oddvita Okkar borgar, sem kallar eftir því að Heimir Már og Flokkur fólksins skýri mál sitt.

„Ég krefst þess að fá skýringu á því hvers vegna menn telji sig vera fínni en ég eða aðrir sem þarna voru. Þegar menn hafa svona skoðun, þá dreg ég verulega í efa að Flokkur fólksins geti tekið þátt í komandi kosningum – ef frambjóðandinn getur ekki verið nálægt þeim þremur, öllum eða einhverjum, sem í þáttinn mættu,“ segir hann meðal annars.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Gylfi blæs á kjaftasögurnar – „Ég vil ekki búa til óvini til að slá pólitískar keilur“

Gylfi blæs á kjaftasögurnar – „Ég vil ekki búa til óvini til að slá pólitískar keilur“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Halla krefst úrbóta eftir að naumlega tókst að forða stórslysi

Halla krefst úrbóta eftir að naumlega tókst að forða stórslysi
Fréttir
Í gær

Dóra Björt bálreið út í RÚV – „Er verið að upplýsa almenning, eða hafa áhrif á kosningar?“

Dóra Björt bálreið út í RÚV – „Er verið að upplýsa almenning, eða hafa áhrif á kosningar?“
Fréttir
Í gær

Verðandi sendiherra á Íslandi deilir ræðu þekkts nýnasista – Vill að konur verði sviptar kosningarétti og menntun

Verðandi sendiherra á Íslandi deilir ræðu þekkts nýnasista – Vill að konur verði sviptar kosningarétti og menntun
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ræstitækni ehf. dæmd til að greiða Andreinu miskabætur – Mörgum ásökunum hafnað

Ræstitækni ehf. dæmd til að greiða Andreinu miskabætur – Mörgum ásökunum hafnað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rannsókn varpar ljósi á leynilega herferð Ísraels í Eurovision

Rannsókn varpar ljósi á leynilega herferð Ísraels í Eurovision