fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Foreldrar drengsins segja að vægur dómur yfir Helga Bjarti hafi verið áfall

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 16. apríl 2026 21:27

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Foreldrar ungs drengs sem Helgi Bjartur Þorvarðarson braut gegn á heimili þeirra í Hafnarfirði segja að vægur dómur yfir Helga Bjarti, sem féll í Héraðsdómi Reykjaness á miðvikudag, hafi verið þeim áfall.

Helgi Bjartur hlaut 12 mánaða fangelsi, þar af 9 skilorðsbundna. Þá þrjá mánuði sem voru óskilorðsbundnir hafði Helgi þegar setið af sér í gæsluvarðhaldi og hefur hann því verið látinn laus.

Helgi Bjartur var ákærður fyrir húsbrot, kynferðislega áreitni og nauðgun en var ekki sakfelldur fyrir nauðgun heldur húsbrot og kynferðislega áreitni.

Sjá einnig: Gögn ekki talin styðja allan framburð drengsins – Kynferðisleg áreitni en ekki nauðgun

Dómarinn taldi ekki hægt að byggja alfarið á framburði drengsins þegar önnur gögn styddu ekki framburðinn, til dæmis um það atriði að drengurinn sagði Helga Bjart hafa reynt að þröngva getnaðarlim sínum inn í endaþarm hans. Dómarinn taldi eftirfarandi vera sannað um framgöngu Helga Bjarts: Hann hafi farið í heimildarleysi inn á heimili fjölskyldunnar í Hafnarfirði, dregið buxur drengsins niður, káfað á maga, brjóstkassa og rassi hans. Segir dómari að þessi háttsemi sé sönnuð.

Var það mat dómarans að þessi háttsemi félli undir kynferðislega áreitni en ekki nauðgun. Hámarksrefsing fyrir kynferðislega áreitni gegn barni er sex ára fangelsi og því ljóst að dómurinn yfir Helga Bjarti er langt undir því hámarki.

Barninu ekki trúað

Foreldrar drengsins ræddu dóminn undir nafnleynd við RÚV í kvöld. Segja þau dóminn vera mikið áfall og þau upplifi sig í fangelsi, þar sem Helgi Bjartur gengur nú laus aftur en hann býr í sama hverfi og þau.

Það var mat dómarans í málinu að fara yrði varlega í að draga ályktanir af framburði drengsins og er gefið í skyn að einhver kunni að hafa haft áhrif á vitnisburð hans.

„Það virðist vera gefið í skyn og ég er mjög ósáttur við það. Það er alls, alls ekki rétt. Við lögðum mjög mikla áherslu á það strax í upphafi að spyrja hann aldrei beint út í hvað gerðist eða vera með leiðandi spurningar,“ segja faðirinn við RÚV.

Foreldrarnir segjast hafa fengið ráðgjöf frá sérfræðingum áður en drengurinn gaf skýrslur í Barnahúsi um hvernig best væri að ræða málið við hann. Þar hafi þeim verið ráðlagt að ræða málið ekkert við drenginn og þau hafi fylgt þeim ráðum.

Dómarinn fylgdi þeirri línu og taka aðeins gildan þann hluta af framburði drengsins sem gögn málsins styðja, t.d. lífsýni eða myndefni. Foreldrarnir segja um þetta:

„Ef það hefði ekki mælst lífsýni innan klæða hjá syni okkar þá væri maðurinn líklega sýknaður. En það fundust þau gögn og gögnin sem finnast eru í samræmi við það sem sonur okkar segir, en allt annað sem er ekki hægt að sanna með vísindalegum gögnum eða myndavélum á staðnum virðist vera hundsað.“

Sannfærandi frásögn gegn óminni

Foreldrarnir benda á að fráleitt sé að túlka framburð brotaþola og ákærða í málinu sem orð gegn orði þar sem Helgi Bjartur hafi borið við óminni.

„Niðurstaðan er þessi af því að þetta er orð gegn orði. Sem er algörlega út í hött túlkun. Þetta er ekki orð gegn orði. Þetta er sannfærandi frásögn barns sem ítrekað sagði rétt frá gagnvart manni sem segist ekki muna neitt en hafnar því samt að hafa gert þetta. Við erum að tala um orð gegn óminni, ekki orð gegn orði.“

Sjá nánar á vef RÚV.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“
Fréttir
Í gær

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“