
Herve Renard hefur verið rekinn úr starfi landsliðsþjálfara karlaliðs Sádi-Arabíu, aðeins um tveimur mánuðum fyrir upphaf heimsmeistaramótsins.
Franski þjálfarinn staðfesti sjálfur tíðindin og mun því ekki stýra liðinu á HM vestan hafs. Hann var samningsbundinn til ársins 2027.
Renard tók aftur við liðinu árið 2024 eftir stutt stopp með franska kvennalnadsliðið, þar sem liðið olli vonbrigðum á Ólympíuleikunum á heimavelli.
Renard stýrði Sádum á HM árið 2022. Liðið verður með Úrúgvæ, Spáni og Grænhöfðaeyjum í riðli í sumar.