
Treyjunúmerum enska landsliðsins fyrir HM í sumar var lekið á netið í gær. The Sun fjallar um málið og tekur saman hvort númerin gefi einhverjar vísbendingar um hvernig byrjunarliðið verður.
Samkvæmt númerunum verður Jordan Pickford áfram númer eitt hjá Englandi, Harry Kane fær auðvitað númer níu og Jude Bellingham tíuna.
Bukayo Saka heldur númeri sjö og Marcus Rashford er sagður hafa fengið númer ellefu fram yfir Anthony Gordon, sem verður með númer átján.
Athygli vekur einnig að Ezri Konsa er skráður með númer tvö, sem gæti bent til þess að Thomas Tuchel sjái hann fyrir sér sem hægri bakvörð.
Reece James fær númer 24 en talið er að hann gæti barist við Konsa um sæti í byrjunarliðinu.
England hefur leik á HM gegn Króatíu þann 17. júní.