

Jamie Carragher, fyrrverandi fyrirliði Liverpool og sérfræðingur Sky Sports, hefur lýst yfir áhyggjum sínum af væntanlegri ráðningu Andoni Iraola sem knattspyrnustjóra Liverpool.
Liverpool rak Arne Slot um helgina eftir vonbrigðatímabil, aðeins ári eftir að Hollendingurinn stýrði liðinu til Englandsmeistaratitils. Nú er talið nær öruggt að Iraola taki við starfinu eftir frábæran árangur með Bournemouth, sem tryggði sér Evrópusæti í fyrsta sinn í sögu félagsins.
Carragher segir engan efast um gæði spænska stjórans eða skemmtilegan leikstíl Bournemouth-liðsins, en telur þó að næsta skref á ferli Iraola hafi mögulega komið of snemma.
„Enginn getur sagt að Bournemouth sé ekki skemmtilegt lið að horfa á. Þegar þeir eru í sjónvarpinu veistu að þú munt sjá góðan leik,“ sagði Carragher í The Overlap Fan Debate.
Hann bendir hins vegar á að Iraola eigi enn eftir að sanna að leikstíll hans geti skilað árangri á mörgum vígstöðvum samtímis, sérstaklega þegar Evrópukeppni bætist við leikjaprógrammið.
„Þegar þú ert í Evrópu þarftu að rótera leikmönnum og stjórna álaginu. Mér fannst hann þurfa eitt tímabil til viðbótar til að sýna fram á að hann gæti haldið uppi sama ákafa leikstíl í Evrópukeppni áður en hann tæki næsta skref,“ sagði Carragher.
Fyrrum varnarmaðurinn hefur einnig áhyggjur af því hvort leikmenn Liverpool þoli þann mikla ákafa sem einkennir lið Iraola. Hann bendir á að lið stjórans hafi oft dalað eftir áramót og að meiðslavandamál gætu orðið stærra vandamál hjá félagi sem spilar mun fleiri leiki en Bournemouth.
„Þetta snýst um hvort leikmenn meiðist of mikið. Ef ákafinn þarf að minnka, þá ertu ekki lengur að fá hinn sanna Iraola. Þetta eru spurningar sem Liverpool þarf að svara,“ sagði Carragher.