fbpx
Miðvikudagur 03.júní 2026
433Sport

Rogers sagður efstur á óskalista Arteta

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 2. júní 2026 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arsenal hefur sett stefnuna á Morgan Rogers, kantmann Aston Villa og enska landsliðsins, samkvæmt fréttum Mirror.

Mikel Arteta er sagður líta á hinn 23 ára gamla Rogers sem eitt helsta skotmark sitt á félagaskiptamarkaðnum eftir að Arsenal tryggði sér enska meistaratitilinn á síðasta tímabili. Markmið Spánverjans er að styrkja hópinn enn frekar fyrir titilvörnina og auka möguleika félagsins í Meistaradeild Evrópu.

Rogers átti frábært tímabil með Aston Villa og var einn af lykilmönnum liðsins bæði í deild og Evrópukeppni. Frammistaða hans hefur vakið athygli stærstu félaga Evrópu og Arsenal er ekki eina félagið sem hefur áhuga.

Nýkrýndir Evrópumeistarar Paris Saint-Germain fylgjast einnig grannt með stöðu leikmannsins og gætu reynst Arsenal erfiðir keppinautar í baráttunni um undirskrift hans.

Aston Villa hefur hins vegar engan áhuga á að missa einn af sínum bestu leikmönnum og er talið að félagið muni krefjast mjög hárra fjárhæða fyrir Rogers.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Sirrý birtir myndband sem vekur athygli og umtal – „Þetta er okkur til skammar“

Sirrý birtir myndband sem vekur athygli og umtal – „Þetta er okkur til skammar“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Líkur á að Cucurella fari frá Chelsea – Þrjú stórlið hafa áhuga í heimalandinu

Líkur á að Cucurella fari frá Chelsea – Þrjú stórlið hafa áhuga í heimalandinu
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Lætur Liverpool strax vita að hann vilji að þessir fimm verði keyptir í sumar

Lætur Liverpool strax vita að hann vilji að þessir fimm verði keyptir í sumar
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Er að taka við af Mourinho

Er að taka við af Mourinho
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum
Beckham girnist Guardiola
433Sport
Í gær

Völdu bestu kaup tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni – Valið kemur mörgum á óvart

Völdu bestu kaup tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni – Valið kemur mörgum á óvart
433Sport
Í gær

Tveir lykilmenn City útiloka það ekki að fara í sumar – Brotthvarf Guardiola gæti breytt miklu

Tveir lykilmenn City útiloka það ekki að fara í sumar – Brotthvarf Guardiola gæti breytt miklu