fbpx
Fimmtudagur 07.maí 2026
Pressan

Meint sjálfsvígsbréf Epsteins gert opinbert

Pressan
Fimmtudaginn 7. maí 2026 09:39

Jeffrey Epstein er sagður hafa skrifað þetta bréf.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandarískur alríkisdómari heimilaði í gær birtingu á áður innsigluðu skjali sem talið er vera sjálfsvígsbréf fjárfestisins og kynferðisbrotamannsins Jeffrey Epstein, sem fannst látinn í fangaklefa sínum árið 2019.

Bréfið, sem er hvorki dagsett né undirritað, var gert opinbert meðal dómskjala í máli Nicholas Tartaglione, fyrrverandi lögreglumanns og klefafélaga Epstein, sem afplánar dóm fyrir fjögur morð.

Í frétt CNN um málið kemur fram að Tartaglione hafi haldið því fram að Epstein hafi skrifað bréfið eftir misheppnaða sjálfsvígstilraun í júlí 2019, nokkrum vikum áður en hann fannst látinn í fangaklefa sínum.

Í bréfinu koma fram persónulegar og svartsýnar yfirlýsingar. Þar segir meðal annars:

„Þeir rannsökuðu mig mánuðum saman — fundu EKKERT!“

Síðar segir:

„Það er sérstök tilfinning að geta sjálfur ákveðið hvenær maður kveður.“

Og enn fremur:

„Engin ánægja – ekki þess virði!“

Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna lagðist ekki gegn því að skjalið yrði birt opinberlega, en tók þó fram að stjórnvöld gætu ekki staðfest hvort bréfið væri ekta.

Tilvist hins meinta sjálfsvígsbréfs var fyrst opinberuð af The New York Times í síðustu viku. Samkvæmt blaðinu hafði skjalið verið falið almenningi í nærri sjö ár.

Tartaglione sagði í viðtali í fyrra að hann hefði fundið bréfið inni í bók í fangaklefanum eftir að hafa endurlífgað Epstein með hjartahnoði.

„Jeffrey Epstein reyndi að svipta sig lífi þegar hann var í klefanum með mér. Ég vaknaði og endurlífgaði hann með hjartahnoði,“ sagði hann.

Samkvæmt skjölum sem birt voru með málinu fannst Epstein á sínum tíma liggjandi í fósturstellingu á gólfinu með snöru um hálsinn sem hann hafði sjálfur útbúið.

Málið hefur árum saman verið umdeilt og ýtt undir fjölmargar samsæriskenningar um dauða Epstein.

Réttarmeinafræðingar komust þó að þeirri niðurstöðu árið 2019 að hann hefði svipt sig lífi. Bandaríska dómsmálaráðuneytið sagði enn fremur í minnisblaði í fyrra að engar vísbendingar bentu til þess að Epstein hefði verið myrtur.


Í þessari frétt er fjallað um sjálfsvíg. Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent á Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa sam­band við Píeta-sam­tök­in sem veita ókeyp­is ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Fógetinn reiddi hátt til höggs eftir handtöku MAGA-liða – „Hann komst upp með brot sín þá en ekki núna“

Fógetinn reiddi hátt til höggs eftir handtöku MAGA-liða – „Hann komst upp með brot sín þá en ekki núna“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Drukkinn maður pantaði sér skyndibita, sofnaði og var svo sakaður um kynferðisbrot – Konan svarar nú til saka

Drukkinn maður pantaði sér skyndibita, sofnaði og var svo sakaður um kynferðisbrot – Konan svarar nú til saka
Pressan
Fyrir 4 dögum

Ný rannsókn varpar ljósi á af hverju svefnskortur getur veikt einbeitinguna

Ný rannsókn varpar ljósi á af hverju svefnskortur getur veikt einbeitinguna
Pressan
Fyrir 4 dögum

Ætla að kortleggja jarðvarma á Grænlandi

Ætla að kortleggja jarðvarma á Grænlandi
Pressan
Fyrir 4 dögum

Völd Pútíns fara þverrandi – „Vinahópurinn hefur minnkað mikið“

Völd Pútíns fara þverrandi – „Vinahópurinn hefur minnkað mikið“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þýskur öfgahægriflokkur býður upp á ókeypis rússneskukennslu og brottflutning innflytjenda

Þýskur öfgahægriflokkur býður upp á ókeypis rússneskukennslu og brottflutning innflytjenda