fbpx
Laugardagur 16.maí 2026
Fréttir

Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 7. maí 2026 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alls komu 47 mál inn á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á tímabilinu frá klukkan 17 í gær til klukkan fimm í morgun.

Í umdæmi lögreglustöðvar 3, sem sinnir Kópavogi og Breiðholti, var gerð athugasemd við rekstur snyrtistofu. Að sögn lögreglu virðist starfsemin ekki hafa verið samkvæmt lögum um slíkan rekstur.

Í dagbók lögreglu kemur fram að málið tengist öðru máli þar sem maður var handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna, vörslu á talsverðu magni fíkniefna, peningaþvætti og fleira. Fékk sá pláss í fangageymslu lögreglu vegna málsins.

Í umdæmi lögreglustöðvar 2, sem sinnir Hafnarfirði og Garðabæ, var tilkynnt um ungmenni á krossurum innan um börn á leiksvæði. Ungmennin tvístruðust og fóru hvert í sína áttina þegar þau urðu vör við lögreglu. Í dagbók lögreglu kemur þó fram að upplýsingar liggi fyrir um heimilisföng hluta þessara ungmenna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Einar ítrekar að hann útilokar samstarf við þennan flokk

Einar ítrekar að hann útilokar samstarf við þennan flokk
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Gagnrýna gerð samnings um heilsufarsþjónustu við starfsfólk og segja hann aldrei hafa verið kynntan

Gagnrýna gerð samnings um heilsufarsþjónustu við starfsfólk og segja hann aldrei hafa verið kynntan
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir það dylgjur hjá Kristrúnu og Degi að Sjálfstæðismenn ætli að selja Orkuveituna

Segir það dylgjur hjá Kristrúnu og Degi að Sjálfstæðismenn ætli að selja Orkuveituna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Landsréttur mildaði dóma í Gufunesmálinu

Landsréttur mildaði dóma í Gufunesmálinu