fbpx
Fimmtudagur 07.maí 2026
Fréttir

Emilíana Torrini er Bæjarlistamaður Kópavogs 2026

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 7. maí 2026 08:36

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs, Emilíana Torrini og Elísabet Sveinsdóttir formaður menningar- og mannlífsnefndar Kópavogs. Mynd: MEKÓ.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Söngkonan og lagahöfundurinn Emilíana Torrini er Bæjarlistamaður Kópavogs árið 2026. Elísabet Sveinsdóttir formaður menningar- og mannlífsnefndar tilkynnti valið við hátíðlega athöfn í Salnum í gær. Bæjarlistamaður Kópavogs er valinn árlega af nefndinni og er markmiðið með valinu að varpa ljósi á fjölbreytt og öflugt listalíf í bænum og heiðra listamenn sem hafa auðgað menningarlíf Kópavogs.

Það er mér mikill heiður að hljóta þessa viðurkenningu og fá að bera titilinn Bæjarlistamaður Kópavogs. Ég er þakklát fyrir traustið og hlýjuna sem mér hefur verið sýnd og hlakka til að fá að leggja mitt af mörkum til lista- og menningarlífsins í bænum,“

segir Emilíana, sem er fædd og uppalin í Kópavogi og hefur búið þar með hléum. Ung hóf hún tónlistarferil sinn í Skólakór Kársness undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur. Emilíana hefur gefið út fimm sólóplötur, sú nýjasta Miss Flower kom út árið 2024, en hinar eru Love in the Time of Science, Fisherman’s Woman, Me and Armini og Tookah. Emilíana er hvað þekktust fyrir smáskífu sína Jungle Drum frá árinu 2009, sem naut mikillar velgengni á vinsældalistum víða um heim.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Lögreglan frelsissvipti ungling eftir að hafa misskilið lögin

Lögreglan frelsissvipti ungling eftir að hafa misskilið lögin
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Eiginmaður grunaður um íkveikju og hrottalegt ofbeldi í garð konu sinnar – „I will fire this whore“

Eiginmaður grunaður um íkveikju og hrottalegt ofbeldi í garð konu sinnar – „I will fire this whore“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Yoko Ono lét stöðva framleiðslu John Lennon bjórs

Yoko Ono lét stöðva framleiðslu John Lennon bjórs
Fréttir
Í gær

Sagði lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu hafa beitt sér harkalega gegn ólögráða syni sínum – Dagbók lögreglunnar sagði allt aðra sögu

Sagði lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu hafa beitt sér harkalega gegn ólögráða syni sínum – Dagbók lögreglunnar sagði allt aðra sögu
Fréttir
Í gær

Brexit veldur Lundúnalögreglunni erfiðleikum við að hafa hendur í hári grunaðs morðingja Madeleine McCann

Brexit veldur Lundúnalögreglunni erfiðleikum við að hafa hendur í hári grunaðs morðingja Madeleine McCann
Fréttir
Í gær

Einar segir skipulagsstefnu höfuðborgarsvæðisins mannfjandsamlega – „Engum hollt að búa við ónóga birtu“

Einar segir skipulagsstefnu höfuðborgarsvæðisins mannfjandsamlega – „Engum hollt að búa við ónóga birtu“