fbpx
Fimmtudagur 07.maí 2026
Fréttir

Karen vill að sveitarfélög steinhætti þessu á sumrin – „Trylltasta meðferð á skattfé sem hægt er að hugsa sér“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 7. maí 2026 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karen Kjartansdóttir, almannatengill og samfélagsrýnir, vill flokka sem lofa henni tug milljóna sparnaði með því að draga úr tilgangslausum slætti á sumrin.

Karen viðraði þessa skoðun sína á Facebook í gær og er óhætt að segja að margir hafi tekið undir með henni.

„Það er galið að sveitarfélög eyði milljónum í að slá niður fallega móa á nokkurra vikna fresti yfir örstuttan sumartímann,“ sagði hún í færslunni.

„Í nágrenni mínu er yndislegur mói þar sem rauðfíflar, vallhumall, sóleyjar, blóðberg, blágresi, gleym-mér-ei, maríustakkur og geldingahnappur blómstra á sumrin. Á milli þeirra eru mosar og grös. Þar eru líka lítil birkitré að reyna að vaxa upp og náttúran stöðugt að minna okkur á hvernig landið leit út áður en við ákváðum að allt þyrfti að líta út eins og golfvöllur. Samt er þetta slegið aftur og aftur og aftur,“ segir hún.

Karen bendir á að fyrstu rökin fyrir því að draga úr slætti séu kostnaðurinn. Hann kosti peninga, vinnuafl, vélar, eldsneyti, viðhald og verktakasamninga svo dæmi seú tekin.

„Þetta er tilgangslausasta og trylltasta meðferð á skattfé sem hægt er að hugsa sér.“

Kostnaðurinn er þó ekki einu rökin og nefnir hún önnur sjónarmið eins og að minni sláttur hjálpi býflugum og fjölbreyttur gróður styðji fuglalíf. Fyrir utan þetta séu náttúruleg svæði nær alltaf fallegri. Hún nefnir fleiri atriði.

„Og já, ég á barn með frjókornaofnæmi. Það hefur verið í afnæmingarmeðferð árum saman til þess eins að ofnæmislyf virki örlítið á það. Sláttur bætir það ekki neitt,“ segir hún meðal annars.

Sem fyrr segir tóku margir undir þetta og deildi til dæmis sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason færslu Karenar með eftirfarandi orðum: „Mikið er ég sammála. Tilgangslaus grassláttur.”

Aðrir tóku í svipaðan streng:

„Óskiljanlegt. Vont fyrir blómin, vont fyrir skordýrin, vont fyrir fuglana, vont fyrir mannfólkið sem sagt vont fyrir alla.“

„Sammála. Var ekki talað um að taka átak í þessu í fyrra eða árið á undan? Svo sá ég ekki einn stakasta blett sem var ósleginn, þrátt fyrir loforð um annað.“

„Agalegt að það sé veist að öllum þessum galdrajurtum í umhverfinu okkar með slíku offorsi.“

„Þessu hef ég alltaf verið sammála, en þá er sagt að það sé sóðaskapur að slá ekki. Allar hljóðmanirnar sem eru slegnar með sérstökum græjum draga minna úr hávaða og mengun. Þessari snyrtimennsku fylgir einnig hávaða mengun og önnur mengun.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Lögreglan frelsissvipti ungling eftir að hafa misskilið lögin

Lögreglan frelsissvipti ungling eftir að hafa misskilið lögin
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Eiginmaður grunaður um íkveikju og hrottalegt ofbeldi í garð konu sinnar – „I will fire this whore“

Eiginmaður grunaður um íkveikju og hrottalegt ofbeldi í garð konu sinnar – „I will fire this whore“
Fréttir
Í gær

Yoko Ono lét stöðva framleiðslu John Lennon bjórs

Yoko Ono lét stöðva framleiðslu John Lennon bjórs
Fréttir
Í gær

Sagði lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu hafa beitt sér harkalega gegn ólögráða syni sínum – Dagbók lögreglunnar sagði allt aðra sögu

Sagði lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu hafa beitt sér harkalega gegn ólögráða syni sínum – Dagbók lögreglunnar sagði allt aðra sögu
Fréttir
Í gær

Brexit veldur Lundúnalögreglunni erfiðleikum við að hafa hendur í hári grunaðs morðingja Madeleine McCann

Brexit veldur Lundúnalögreglunni erfiðleikum við að hafa hendur í hári grunaðs morðingja Madeleine McCann
Fréttir
Í gær

Einar segir skipulagsstefnu höfuðborgarsvæðisins mannfjandsamlega – „Engum hollt að búa við ónóga birtu“

Einar segir skipulagsstefnu höfuðborgarsvæðisins mannfjandsamlega – „Engum hollt að búa við ónóga birtu“