fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 27. febrúar 2026 17:05

Ferðamenn fyrir framan Skógarfoss.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ný könnun sem Gallup framkvæmdi fyrir íslenska ferðaþjónustufyrirtækið Guide to Iceland varpar ljósi á hvernig starfsfólk í íslenskri ferðaþjónustu upplifir ferðamenn frá ólíkum löndum. Niðurstöður sýna að skýr munur er á upplifun starfsfólks eftir uppruna ferðamanna, meðal annars þegar kemur að samskiptum, undirbúningi fyrir íslenskar aðstæður, þjónustutengdum áskorunum og fylgni við öryggis- og umhverfisreglur. Niðurstöðurnar byggja á svörum starfsmanna úr ólíkum greinum ferðaþjónustunnar á Íslandi. Þátttakendur voru beðnir um að nefna minnst eitt og allt að þrjú þjóðerni fyrir hverja spurningu. Niðurstöðurnar sýna augljósan mun á því hvernig ferðamenn frá mismunandi löndum eru skynjaðir þegar kemur að samskiptum, áskorunum í þjónustu, öryggisvitund og undirbúningi.

Ferðamenn frá Bandaríkjunum eru oftast taldir auðveldastir í samskiptum; 74% svarenda nefndu þá meðal þriggja efstu valkosta sinna. Því næst koma ferðamenn frá Bretlandi (55,5%) og Kanada (40%). Ferðamenn frá Kína skera sig úr sem þeir sem erfiðast er að eiga í samskiptum við (67%) og eru einnig oftast nefndir í tengslum við þjónustuáskoranir, svo sem kvartanir, tafir og óraunhæfar væntingar (46%). Auk þess eru þeir algengast nefndir fyrir að fara ekki eftir íslenskum öryggis- og umhverfisreglum; 80% svarenda töldu þá gera það síður en aðrir. Á hinn bóginn eru ferðamenn frá Þýskalandi oftast taldir fylgja íslenskum öryggis- og umhverfisleiðbeiningum (69%). Þeir eru jafnframt taldir best undirbúnir fyrir ferðalag um Ísland, sérstaklega hvað varðar skipulag, réttan klæðnað og skilning á aðstæðum í landinu (76%).

„Gögnin sýna það sem starfsfólk í ferðaþjónustu upplifir á hverjum degi,“ segir Ingólfur Shahin, forstjóri Guide to Iceland. „Markmiðið er ekki að dæma ferðamenn heldur að skapa betri skilning á því hvar tækifæri liggja til úrbóta, bæði í upplýsingagjöf og undirbúningi ferðalanga.“

Ísland tekur árlega á móti milljónum erlendra gesta og hefur ferðaþjónusta verið ein af burðarstoðum hagkerfisins. Samkvæmt könnuninni endurspegla niðurstöðurnar daglega reynslu þeirra sem starfa í greininni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands

Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Eyddi allt að 80 þúsund krónum á dag í krakk: „Myndi ekki óska mínum versta óvini að festast í þessari ógeðslegu fíkn“

Eyddi allt að 80 þúsund krónum á dag í krakk: „Myndi ekki óska mínum versta óvini að festast í þessari ógeðslegu fíkn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon