

Landsliðskonurnar Glódís Perla Viggósdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir voru gestir Helga Fannars Sigurðssonar í nýjasta þætti af Íþróttavikunni.
Ísland vann Úkraínu í undankeppni HM á dögunum. Þær voru spurðar að því hvort það væri öðruvísi að mæta Úkraínu en öðrum þjóðum í ljósi ástandsins heima fyrir hjá þeim.
„Við vorum meðvitaðar um að þær væru ekki hræddar við neitt, það er kannski extra mikið þjóðarstolt,“ sagði Karólína og Glódís tók í sama streng.
„Maður fann að þær hafa engu að tapa. Þær eru að koma úr erfiðum aðstæðum og fyrir þeim er geggjað að geta spilað fótbolta þrátt fyrir aðstæður.
Það er frábær árangur hjá þeim að vera komnar upp í A-deild. Ég held þær séu líka flestar að spila í Úkraínu. Þetta er ótrúlega aðdáunarvert að þær séu komnar svona langt. Þær gáfu Spáni til dæmis fínan leik.“
Nánar í spilaranum.