

Landsliðskonurnar Glódís Perla Viggósdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir voru gestir Helga Fannars Sigurðssonar í nýjasta þætti af Íþróttavikunni.
Það er ekki sjálfgefið að knattspyrnufólk fylgist mikið með fótbolta utan vinnu. Þær voru spurðar út í þetta en svöruðu báðar neitandi.
„Ég segi alltaf að ég sé ekki með neinar stöðvar,“ sagði Karólína og hló, áður en hún útskýrði þetta nánar.
„Mér finnst voðalega næs að gleyma mér alveg þegar ég hef minn frítíma en svo þegar það eru stórleikir er gaman að horfa.“
Glódís tók í svipaðan streng.
„Ég er eiginlega í sama pakka en það er oft fótbolti í gangi heima hjá mér því maðurinn minn horfir mjög mikið á fótbolta, hann horfir til dæmis alltaf á Inter,“ sagði hún, en Karólína spilar fyrir ítalska stórliðið.
Nánar í spilaranum.