
Indverjar eru mjög háðir innflutningi á olíu og því kemur lokun Hormússunds sér mjög illa fyrir þá. Olíuverðið hefur hækkað mikið og olíuskortur hefur áhrif á vöruflutninga til Indlands.
Þetta er mikið áhyggjuefni fyrir indversk stjórnvöld og um síðustu helgi ávarpaði Narendra Modi, forsætisráðherra, þjóð sína og sagði að allir verði að leggja sitt af mörkum til að bjarga efnahagslífi landsins.
Hann gerðist meira að segja svo djarfur að nefna hið sérstaka samband Indverja við gull.
Fyrst vísaði hann til heimsfaraldurs kórónuveirunnar og sagði að nú sé rétt að taka upp ákveðna hluti frá þeim tíma, til dæmis að vinna heima, halda fjarfundi eða taka lest eða nota rafmagnsbíl þegar fara þarf á milli staða.
Markmiðið er að draga úr notkun á bensíni og dísilolíu en Indverjar flytja 88% af allri þeirri olíu, sem þeir nota, inn. Refsiaðgerðir Vesturlanda gegn Rússlandi vegna innrásarinnar í Úkraínu hafa lengi sýnt Indverjum hversu erfið staða það er að þurfa að flytja svona mikið inn af olíu.
Modi kom einnig inn á afleidda áhættu af stöðunni og sagði að þjóðin verði að reyna að vernda gjaldeyrisforða sinn. Rúpían, indverski gjaldmiðillinn, hefur átt í vök að verjast gagnvart gengi Bandaríkjadals og hefur indverski seðlabankinn neyðst til að grípa inn í til að styðja við rúpíuna.
Modi sagði einnig að hin sístækkandi millistétt landsins beri sérstaka ábyrgð.
„Hjá millistéttinni verður sífellt algengara að halda brúðkaup erlendis, fara til útlanda og vera í fríi í útlöndum. Við verðum að taka ákvörðun um hvort í núverandi krísu sé ekki rétt að fresta utanlandsferðum um eitt ár,“ sagði hann.
Síðan kom hann inn á mjög viðkvæmt efni, samband Indverja við gull. Hann hvatti landa sína til að kaupa ekki gull fyrir hátíðir á þessu ári.
Þetta þykir djarfur leikur hjá Modi því gull gegnir mjög mikilvægu hlutverki í indversku samfélagi. Það er keypt í miklu magni fyrir sérstakar hátíðir, notað sem heimanmundur í brúðkaupum og auðvitað sem fjárfesting.
Samkvæmt upplýsingum frá World Gold Council, sem eru samtök tengd gulliðnaðinum, þá eiga indversk heimili 25.000 tonn af gulli í skartgripaskrínum sínum. Þetta er um þrefalt meira af gulli en er í stærsta gullforða heims en það er sá bandaríski sem er meðal annars geymdur í Fort Knox.
Indverjar vinna ekki mikið gull úr jörðu og því er megnið flutt inn og það þarf mikinn gjaldeyri til að greiða fyrir það og það er það sem Modi vill forðast að nota gjaldeyrisforðann í.