fbpx
Föstudagur 12.júní 2026
Pressan

Harmleikur ofan á harmleik á Maldíveyjum: Björgunarkafari lést við leit að Ítölunum

Pressan
Laugardaginn 16. maí 2026 14:30

Federico Gualtieri, Gianluca Benedetti, Muriel Oddenino, Giorgia Sommacal og Monica Montefalcone.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fimm ítalskir kafarar létust í hörmulegu hellaköfunarslysi á Maldíveyjum á fimmtudag þegar hópurinn hvarf í neðansjávarhelli á um 50 metra dýpi við Vaavu-eyjaklasann.

Björgunaraðgerðir hafa staðið yfir, en í morgun að staðartíma lést einnig kafari úr strandgæslu Maldíveyja sem tók þátt í leitinni.

Liðþjálfinn Mohammed Mahudhee, reyndur björgunarkafari hjá strandgæslu landsins, veiktist meðan á aðgerðunum stóð og var fluttur á sjúkrahús þar sem hann lést síðar.

Her Maldíveyja heiðraði minningu hans í yfirlýsingu og sagði hugrekki hans og fórnfýsi verða ávallt í minnum höfð.

Sjá einnig: Móðir og dóttir meðal fimm sem létust í harmleiknum á Maldíveyjum

Lík köfunarkennarans Gianluca Benedetti fannst skömmu eftir slysið, en leit að hinum fjórum stendur enn yfir. Yfirvöld rannsaka nú hvað fór úrskeiðis og hefur nokkrum kenningum verið varpað fram.

Mohammed Mahudhee.

Meðal þeirra sem létust voru Monica Montefalcone, 51 árs prófessor í sjávarvistfræði við Háskólann í Genúa, og dóttir hennar Giorgia Sommacal, 22 ára. Hin fórnarlömbin voru Muriel Oddenino, Federico Gualtier auk Benedetti.

Carlo Sommacal, eiginmaður Montefalcone og faðir Giorgiu, sagði í samtali við ítalska fjölmiðla að GoPro-myndavél sem eiginkona hans var líklega með á sér gæti hugsanlega varpað ljósi á slysið.

„Monica var yfirleitt með GoPro þegar hún fór að kafa. Ef hún var með hana þennan dag gæti upptakan hjálpað okkur að skilja hvað gerðist,“ sagði hann.

Sérfræðingar hafa gagnrýnt ákvörðun hópsins um að kafa niður í hellinn. Veðurviðvörun var í gildi á svæðinu og talið er að öldugangur hafi getað valdið slæmu skyggni neðansjávar.

Þá er ferðamönnum almennt bannað að kafa dýpra en 30 metra á Maldíveyjum, en hópurinn var á um 50–60 metra dýpi þegar slysið varð.

Talsmaður stjórnvalda á Maldíveyjum sagði hellinn afar hættulegan og að jafnvel reyndustu kafarar reyndu yfirleitt ekki að nálgast hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Móðir saklaus sökuð um þjófnað í Sports Direct – „Já, af því að þú ert þjófur!“

Móðir saklaus sökuð um þjófnað í Sports Direct – „Já, af því að þú ert þjófur!“
Pressan
Í gær

Fjölskyldufríið byrjaði með martröð: Ölvaðir farþegar, hvorki vott né þurrt og klukkustunda töf vegna neyðarástands – „Stressandi og ógnvekjandi“

Fjölskyldufríið byrjaði með martröð: Ölvaðir farþegar, hvorki vott né þurrt og klukkustunda töf vegna neyðarástands – „Stressandi og ógnvekjandi“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nýjar upplýsingar í óhugnanlegu máli

Nýjar upplýsingar í óhugnanlegu máli
Pressan
Fyrir 2 dögum

Bandaríkin svara fyrir sig og gera árás á Íran

Bandaríkin svara fyrir sig og gera árás á Íran
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hatur í garð ferðamanna á Tenerife – „Kill Tourists“

Hatur í garð ferðamanna á Tenerife – „Kill Tourists“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Flugfreyja varar alla sem nota sætisborðin við

Flugfreyja varar alla sem nota sætisborðin við
Pressan
Fyrir 3 dögum

Svíar hyggjast fangelsa börn frá 13 ára aldri vegna gengjaofbeldis

Svíar hyggjast fangelsa börn frá 13 ára aldri vegna gengjaofbeldis
Pressan
Fyrir 4 dögum

Afhjúpa sterk viðbrögð Obama við Brexit: „Þið hafið f**** ykkur“

Afhjúpa sterk viðbrögð Obama við Brexit: „Þið hafið f**** ykkur“