fbpx
Mánudagur 15.júní 2026
433Sport

Skilur ekki af hverju Ólafur fær ekki sömu meðferð og Hemmi Hreiðars – „Það er eins og þetta sé dáið“

433
Mánudaginn 18. maí 2026 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikael Nikulásson fyrrum þjálfari KFA og sérfræðingur Þungavigtarinnar skilur ekki af hverju umtalið í kringum Breiðablik er orðið svona lítið.

Breiðablik er með tólf stig í Bestu deild karla eftir sjö leiki en liðið tapaði sínum fyrsta leik í sumar gegn Val í gær.

Ólafur Ingi Skúlason er á sínu fyrsta heila tímabili með Breiðablik en liðið er sjö stigum frá toppsætinu núna eftir sjö umferðir.

„Er Ólafur Ingi með frípassa? Hermann Hreiðarsson er búinn að fá algjöran lestur fá fyrsta degi. Halldór Árnason fékk lestur sem þjálfari Breiðabliks í fyrra í þáttunum, hvað er að frétta af Breiðablik? Hefur enginn áhuga á Breiðablik lengur?,“ sagði Mikael í Þungavigtinni.

Getty Images

Mikael segir að fyrrum þjálfarar Breiðabliks hafi setið undir meiri gagnrýni en Ólafur í starfi.

„Það höfðu allir áhuga á Breiðablik þegar Óskar Hrafn og Halldór voru þjálfarar. Þeir eiga að vera með færri en þessi 12 stig sem þeir eru með.“

„Það er enginn að tala um Breiðablik, það er eins og þetta sé dáið. Ólafur Ingi sést varla, gefur ekkert af sér í viðtölum. Þeir spila hundleiðinlegan fótbolta, heppnir að vinna Skagann og eiga að tapa gegn Víking í fyrst umferð. Besti leikurinn er gegn Þrótti í bikarnum. Breiðablik á að vera með svona átta stig í þessari deild.“

Breiðablik er með tólf stig líkt og Valur en Mikael horfir öðruvísi á hlutina þar. „Hermann er að gera frábæra með hluti með Val.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Fær greitt þrátt fyrir að fá ekki að vinna

Fær greitt þrátt fyrir að fá ekki að vinna
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Stórhuga Skagamenn með seðlana á lofti og virðast hvergi nærri hættir

Stórhuga Skagamenn með seðlana á lofti og virðast hvergi nærri hættir
433Sport
Í gær

Amorim færist nær starfinu

Amorim færist nær starfinu
433Sport
Í gær

Með skýr skilaboð til Arnars Gunnlaugs – „Ég er fastur á þeirri skoðun“

Með skýr skilaboð til Arnars Gunnlaugs – „Ég er fastur á þeirri skoðun“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Stjarnan staðfestir komu Jóns Þórs – Tekur við af Jökli

Stjarnan staðfestir komu Jóns Þórs – Tekur við af Jökli
433Sport
Fyrir 2 dögum

Skorar á KSÍ og segir þeim að horfa til Englands

Skorar á KSÍ og segir þeim að horfa til Englands
433Sport
Fyrir 2 dögum

Djarfur klæðaburður í stúkunni vekur gríðarlega athygli – Myndir

Djarfur klæðaburður í stúkunni vekur gríðarlega athygli – Myndir
433Sport
Fyrir 2 dögum

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls