fbpx
Föstudagur 12.júní 2026
Pressan

Þetta hefur aldrei áður gerst í 70 ára sögu Honda

Einar Þór Sigurðsson
Laugardaginn 16. maí 2026 15:30

Mynd/Pexels

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Japanski bílaframleiðandinn Honda varð fyrir talsverðu áfalli á síðasta rekstrarári þegar félagið tapaði 2,7 milljörðum dala, jafnvirði rúmlega 370 milljarða íslenskra króna.

Þetta er í fyrsta sinn sem fyrirtækið skilar tapi síðan það var skráð á hlutabréfamarkað í Tókýó árið 1957.

Í uppgjöri félagsins kemur fram að tapreksturinn megi að stórum hluta rekja til umfangsmikilla breytinga á rafbílaáætlunum fyrirtækisins, en félagið ákvað á síðasta ári að draga úr metnaðarfullri stefnu sinni í rafbílavæðingu.

Undanfarin ár hafði fyrirtækið lagt mikla áherslu á að ná forskoti á rafbílamarkaði og stefndi að því að allt vöruframboð þess yrði annaðhvort rafmagns- eða vetnisknúið fyrir árið 2040.

Í frétt New York Times kemur fram að til að ná því markmiði fjárfesti félagið milljörðum dala í þróun nýrra rafbíla, bæði sjálfstætt og í samstarfi við General Motors og Sony.

Honda ætlaði sér meðal annars að keppa við fyrirtæki á borð við Tesla og kínverska bílaframleiðandann BYD, sem hafa sótt hratt fram á rafbílamarkaði undanfarin ár.

Á sama tíma fóru aðrir japanskir framleiðendur, þar á meðal Toyota, hægari og varfærnari leið með áframhaldandi áherslu á tvinnbíla.

Eftirspurn eftir rafbílum hefur hins vegar minnkað nokkuð að undanförnu, sérstaklega í Bandaríkjunum sem er stærsti markaður Honda. Þar dróst rafbílasala saman um um fjögur prósent árið 2025 eftir mörg ár af samfelldum vexti.

Margir neytendur hafa enn áhyggjur af takmörkuðum hleðsluinnviðum og háu verði rafbíla. Þá höfðu breytingar á ríkisstyrkjum til rafbílakaupa í Bandaríkjunum einnig áhrif á markaðinn.

Í mars tilkynnti framkvæmdastjóri Honda, Toshihiro Mibe, að fyrirtækið hygðist hætta við þrjár nýjar rafbílagerðir sem þróaðar voru fyrir Norður-Ameríkumarkað. Þar á meðal voru ódýr rafbílalína í samstarfi við General Motors og hátæknibíll sem þróaður var með Sony.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Móðir saklaus sökuð um þjófnað í Sports Direct – „Já, af því að þú ert þjófur!“

Móðir saklaus sökuð um þjófnað í Sports Direct – „Já, af því að þú ert þjófur!“
Pressan
Í gær

Fjölskyldufríið byrjaði með martröð: Ölvaðir farþegar, hvorki vott né þurrt og klukkustunda töf vegna neyðarástands – „Stressandi og ógnvekjandi“

Fjölskyldufríið byrjaði með martröð: Ölvaðir farþegar, hvorki vott né þurrt og klukkustunda töf vegna neyðarástands – „Stressandi og ógnvekjandi“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nýjar upplýsingar í óhugnanlegu máli

Nýjar upplýsingar í óhugnanlegu máli
Pressan
Fyrir 2 dögum

Bandaríkin svara fyrir sig og gera árás á Íran

Bandaríkin svara fyrir sig og gera árás á Íran
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hatur í garð ferðamanna á Tenerife – „Kill Tourists“

Hatur í garð ferðamanna á Tenerife – „Kill Tourists“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Flugfreyja varar alla sem nota sætisborðin við

Flugfreyja varar alla sem nota sætisborðin við
Pressan
Fyrir 3 dögum

Svíar hyggjast fangelsa börn frá 13 ára aldri vegna gengjaofbeldis

Svíar hyggjast fangelsa börn frá 13 ára aldri vegna gengjaofbeldis
Pressan
Fyrir 4 dögum

Afhjúpa sterk viðbrögð Obama við Brexit: „Þið hafið f**** ykkur“

Afhjúpa sterk viðbrögð Obama við Brexit: „Þið hafið f**** ykkur“