fbpx
Þriðjudagur 19.maí 2026
Fréttir

Segist hafa verið gaslýst opinberlega af ráðherrum ríkisstjórnarinnar – „Hvað gerði ég til að verðskulda það?“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 18. maí 2026 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Móðirin Ingibjörg Einarsdóttir segir að í fjórgang hafi hún verið gaslýst opinberlega af ráðherrum ríkisstjórnarinnar, í tvígang af Guðmundi Inga Kristinssyni, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, og í tvígang af eftirmanni Guðmundar, Ingu Sæland. Öll fjögur skiptin vörðuðu stöðu barna með fíknivanda. Þetta kemur fram í grein Ingibjargar sem birtist hjá Vísi í dag.

„Núna hef ég upplifað það fjórum sinnum að vera gaslýst opinberlega af ráðherrum. Tvisvar af Guðmundi Inga og núna tvisvar af Ingu Sæland með stuttu millibili. Hvað gerði ég til að verðskulda það?,“ spyr Ingibjörg sem segist hafa upplifað gaslýsinguna eftir að hún steig fram til að greina frá raunverulegri stöðu barna með fjölþættan vanda og hvernig staðan er í meðferðarúrræðum á Íslandi.

Guðmundur Ingi hafi haldið því fram að það væri ekki áfellisdómur yfir kerfinu að foreldrar þurfi að senda börn sín í meðferð til Suður-Afríku. Eins hafi hann fullyrt að slík meðferð uppfylli ekki staðla sem gilda á Íslandi og á Norðurlöndum, en viðurkenndi samt samhliða að hafa ekki kynnt sér úrræðin sem standa til boða í Suður-Afríku.

„Ég get þó staðfest eitt: Börnin eru edrú þar. Það hefur ekki alltaf verið raunin í úrræðum hér heima,“ segir Ingibjörg og bendir á að sannleikurinn sé að engin gæðaviðmið séu til hér á landi fyrir fíknimeðferð barna. Því megi segja að ekkert gæðaeftirlit sé til staðar og þar með erfitt að sjá hvaða staðla meðferðarúrræði á Íslandi uppfylla umfram úrræðin í Suður-Afríku. Árangur meðferðarúrræða hefur aldrei verið árangursmældur hér á landi en samt er fullyrt að úrræðin byggi á gagnreyndum aðferðum.

„Þá spyr ég: Hvernig geta aðferðir kallast gagnreyndar ef árangurinn hefur aldrei verið mældur? Eru þær kannski gagnreyndar í að mistakast?“

Samkvæmt skýrslu Gæða- og eftirlitsstofnunar hafa úrræði Barna- og fjölskyldustofu (BOFS) aldrei verið árangursmæld og eins er þar tekið fram að innan þessara úrræða sé að finna börn sem heldur ættu heima innan geðheilbrigðiskerfisins vegna alvarlegra andlegra veikinda.

Guðmundur Ingi hafi svo fullyrt að neysla inni á Stuðlum væri gamalt vandamál en Ingibjörg segist hafa heimildir fyrir öðru. Nú hafi Inga Sæland stigið inn í umræðuna í kommentakerfinu og sakað Ingibjörgu um að bulla.

„Hún fullyrðir í fjölmiðlum að enginn biðtími sé eftir meðferð fyrir börn. Þessu er einnig haldið fram á vef Stjórnarráðsins. Ég veit hins vegar um barn í alvarlegri stöðu sem hefur ítrekað endað á bráðamóttöku og hefur nú beðið í tæpan mánuð eftir meðferð. Ég tók það sérstaklega fram að staðan væri mismunandi eftir úrræðum: Það væri ekki biðlisti í langtímameðferð fyrir drengi akkúrat núna en það væri biðlisti í grunnmeðferð. Þrátt fyrir það var því haldið fram aftur og aftur að „engin börn biðu eftir meðferð“.“

Það sé alvarlegt að ráðherra fari opinberlega fram með ósannindi í jafn viðkvæmum málaflokki. Það hjálpi engum að afneita raunveruleikanum.

„Þvert á móti grefur það undan foreldrum, börnum og öllum þeim sem reyna að benda á hvað sé raunverulega að gerast. Þetta er málaflokkur þar sem staðan er oft bókstaflega spurning um líf eða dauða. Sýnum þessum börnum og foreldrum þá virðingu að segja sannleikann eins og hann er. Hættum að sópa óþægilegum staðreyndum undir teppið. Það er ekki hægt að laga kerfi sem neitar að horfast í augu við eigin stöðu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Hljóðupptaka bendir til að eigandi gistiheimilis í Þverholti selji fíkniefni í stórum stíl – „Já, ef þú ert með einhvern aur“

Hljóðupptaka bendir til að eigandi gistiheimilis í Þverholti selji fíkniefni í stórum stíl – „Já, ef þú ert með einhvern aur“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Þrír slasaðir eftir eftirför lögreglu á Reykjanesbrautinni – „Ökufanturinn stofnaði lífi og heilsu annarra vegfaranda í mikla hættu“

Þrír slasaðir eftir eftirför lögreglu á Reykjanesbrautinni – „Ökufanturinn stofnaði lífi og heilsu annarra vegfaranda í mikla hættu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðlaugur sigurreifur þó fyrstu tölur liggi ekki fyrir – „Þetta er ekki flókið. Við munum fá góða kosningu“

Guðlaugur sigurreifur þó fyrstu tölur liggi ekki fyrir – „Þetta er ekki flókið. Við munum fá góða kosningu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lýsir yfir ábyrgð og íhugar að stíga til hliðar – „Kannski er minn tími kominn“

Lýsir yfir ábyrgð og íhugar að stíga til hliðar – „Kannski er minn tími kominn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur í Reykjanesbæ

Meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur í Reykjanesbæ
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fyrstu tölur úr Kópavogi: Stórtíðindi fyrir Sjálfstæðisflokkinn

Fyrstu tölur úr Kópavogi: Stórtíðindi fyrir Sjálfstæðisflokkinn