fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Pressan

Fyrrum yfirmaður bresku leyniþjónustunnar MI6 segir að eitt geti brotið Pútín

Pressan
Laugardaginn 16. maí 2026 17:00

Vladimir Putin. Mynd: EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir Evrópubúar eiga erfitt með að átta sig á þeim áhrifum sem það mun hafa ef Rússar sigra í stríðinu í Úkraínu. Það mun hafa í för með sér að Vladímír Pútín mun fá enn meiri áhuga á að ráðast á fleiri Evrópuríki.

Þetta sagði Richard Moore, sem var yfirmaður bresku leyniþjónustunnar MI6 þar til nýlega, í samtali við Børsen.

Hann sagði að eftir fjögurra ára stríð í Úkraínu sé lítið eftir í Rússlandi annað en hervald. Vald sem Pútín einblíni á að nota til að sigra í stríðinu.

Þrátt fyrir að stríðið sé forgangsatriði hjá Pútín, þá telur Moore að Pútín leggi meiri áherslu á að halda völdum en stríðið.

„Þetta þýðir að ef við getum beitt Pútín þrýstingi sem fær hann til að finnast sem honum sé ógnað, þá er hann kannski ekki alveg jafn staðfastur og við höldum,“ sagði Moore.

En ef það á að ógna völdum hans af alvöru þá þarf að styðja gríðarlega mikið við Úkraínu, bæði hernaðarlega og efnahagslega. Slíkur stuðningur getur að lokum endað með árásum Úkraínumanna langt inni í Rússlandi og það getur ógnað völdum Pútíns að mati Moore.

En ef þessi staða kæmi upp, þá væri hún vandmeðfarin því þetta yrði „algjör niðurlæging“ fyrir Pútín og því ástæða til að óttast hvernig Pútín myndi bregðast við.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Ný veira gæti borist úr matnum í augu

Ný veira gæti borist úr matnum í augu
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Svefntilraun unglinganna hafði alvarlegar afleiðingar

Svefntilraun unglinganna hafði alvarlegar afleiðingar
Pressan
Í gær

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig
Pressan
Í gær

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum
Pressan
Í gær

Flugvél hrapaði í íbúahverfi á Tenerife

Flugvél hrapaði í íbúahverfi á Tenerife
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lýsir skelfilegri hákarlaárás í smáatriðum

Lýsir skelfilegri hákarlaárás í smáatriðum