fbpx
Þriðjudagur 19.maí 2026
Pressan

Hjón létu börnin sín nærast eingöngu á fljótandi fæði – 12 ára stúlka leit út fyrir að vera 6-8 ára

Pressan
Mánudaginn 18. maí 2026 15:30

Jason og Jessica Klimp. Lögreglumynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjónin Jason og Jessica King hafa ákveðið að andmæla ekki ákæru gegn sér um ofbeldi gegn börnum. Réttað er yfir fólkinu við dómstól í Lansing, Michigan BNA.

Þau Jason, 45 ára, og Jessica, 45 ára, eiga átta börn, þar af eru fjögur ættleidd. Þau eru sökuð um að hafa látið börnin um langt skeið nærast aðeins á vökva, vegna þess að þeim fannst þau borða of mikið. Einnig eru þau sökuð um að hafa lokað börnin inni í hundabúrum.

Er rannsóknarlögreglumenn komust í samband við 12 ára dóttur hjónanna þá leit hún út fyrir að vera 6 til 8 ára, vegna þess að hún var svo smávaxin. Börnin á heimilinu báru merki um langvarandi vannæringu.

Brotin voru framin í tveimur fylkjum en um tíma bjuggu Klimp-hjónin í Tennessee. Þegar hefur verið réttað yfir þeim vegna illrar meðferðar barnanna þar og fengu þau hvort um sig tíu ára fangelsisdóm. Það mun bætast við þá refsingu vegna þess að hjónin hafa nú verið framseld til Michigan þar sem réttað er yfir þeim vegna brota gegn börnunum er þau bjuggu þar. Refsing yfir Jason verður kveðin upp 16. júní en ekki liggur fyrir um hvernig refsing yfir Jessicu verður ákvörðuð.

Nánar má lesa um málið hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Grænn, gulur eða þroskaður – Hvaða banani er hollastur?

Grænn, gulur eða þroskaður – Hvaða banani er hollastur?
Pressan
Í gær

Göngumaður skildi eftir skilaboð í talhólfi föður síns rétt áður en hann var drepinn

Göngumaður skildi eftir skilaboð í talhólfi föður síns rétt áður en hann var drepinn
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Hann veitti mér frábærar fullnægingar“ – „Af hverju ríðum við ekki?“

„Hann veitti mér frábærar fullnægingar“ – „Af hverju ríðum við ekki?“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sjúklingur lést á skurðarborðinu – Læknir fjarlægði rangt líffæri

Sjúklingur lést á skurðarborðinu – Læknir fjarlægði rangt líffæri
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þess vegna ættirðu að setja ólífuolíu út í kaffið þitt

Þess vegna ættirðu að setja ólífuolíu út í kaffið þitt
Pressan
Fyrir 2 dögum

Forsætisráðherrann hvetur Indverja til að slaka á gylltu lífi sínu

Forsætisráðherrann hvetur Indverja til að slaka á gylltu lífi sínu