fbpx
Föstudagur 12.júní 2026
Pressan

Milljarðamæringur hóaði börnunum sínum saman til grimmdarlegrar æfingar

Pressan
Laugardaginn 16. maí 2026 18:30

Frá Osló. Mynd:Wikimedia Commons

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hlutverkaleikur getur verið bæði skemmtilegur og skynsamlegur í margvíslegu samhengi. Til dæmis fyrir atvinnuviðtal, fyrir erfitt samtal og áður en fjölskyldufaðirinn deyr.

Það síðastnefnda er að minnsta kosti það sem norski milljarðamæringurinn Stein Erik Hagen, sem stofnaði matvöruverslanakeðjuna Rimi, gerði áður en hann lést.

Hann lést nýlega af völdum hjartaáfalls.

Í samtali við Dagbladet sagðist hann hafa boðað börnin sín fjögur heim til sín til að spila leikinn „Pabbi dó í gær“. Þetta gerði hann til að undirbúa þau undir framtíðina.

„Ég vildi sitja á hliðarlínunni á meðan börnin ræddu hvað þau vildu gera. Ég er ekki að tala um útför og þess háttar, heldur viðskipti,“ sagði hann.

Hann sagðist hafa talið skynsamlegt að ræða um þetta áður en einhver fjölskyldumeðlimur myndi deyja.

„Hvernig á að standa að útförinni, hvernig á að skipta eignunum, hver á að gera hvað og hver á að taka við hverju. Ég held að þessi æfing eigi vel við í fjölskyldunni minni, sérstaklega þar sem það er þegar búið að skipta hlutunum, þrátt fyrir að skiptin séu ójöfn.“

Börnin hans fjögur fá ekki jafn mikið í arf. Næstelsta barnið, Caroline Marie Hagen, fær „meira en hin“ sagði Hagen. Ástæðan er að hún var eina barnið sem hafði áhuga á fyrirtækjarekstrinum. „Hin eru ekki arflaus,“ sagði hann einnig.

Hagen lét eftir sig auðæfi sem eru metin á sem svarar til um 285 milljarða íslenskra króna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Móðir saklaus sökuð um þjófnað í Sports Direct – „Já, af því að þú ert þjófur!“

Móðir saklaus sökuð um þjófnað í Sports Direct – „Já, af því að þú ert þjófur!“
Pressan
Í gær

Fjölskyldufríið byrjaði með martröð: Ölvaðir farþegar, hvorki vott né þurrt og klukkustunda töf vegna neyðarástands – „Stressandi og ógnvekjandi“

Fjölskyldufríið byrjaði með martröð: Ölvaðir farþegar, hvorki vott né þurrt og klukkustunda töf vegna neyðarástands – „Stressandi og ógnvekjandi“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nýjar upplýsingar í óhugnanlegu máli

Nýjar upplýsingar í óhugnanlegu máli
Pressan
Fyrir 2 dögum

Bandaríkin svara fyrir sig og gera árás á Íran

Bandaríkin svara fyrir sig og gera árás á Íran
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hatur í garð ferðamanna á Tenerife – „Kill Tourists“

Hatur í garð ferðamanna á Tenerife – „Kill Tourists“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Flugfreyja varar alla sem nota sætisborðin við

Flugfreyja varar alla sem nota sætisborðin við
Pressan
Fyrir 3 dögum

Svíar hyggjast fangelsa börn frá 13 ára aldri vegna gengjaofbeldis

Svíar hyggjast fangelsa börn frá 13 ára aldri vegna gengjaofbeldis
Pressan
Fyrir 4 dögum

Afhjúpa sterk viðbrögð Obama við Brexit: „Þið hafið f**** ykkur“

Afhjúpa sterk viðbrögð Obama við Brexit: „Þið hafið f**** ykkur“