fbpx
Þriðjudagur 19.maí 2026
Pressan

Algjör ringulreið vegna nýrrar vöru – Fólk slóst og verslanir lokuðu

Pressan
Mánudaginn 18. maí 2026 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hálfgerðar óeirðir brutust út víða í Evrópu og Bandaríkjunum um helgina þegar þúsundir manna flykktust í verslanir svissneska úraframleiðandans Swatch til að freista þess að ná í eintak af nýju úri sem framleitt er í takmörkuðu upplagi.

Úrið sem um ræðir, Royal Pop, er framleitt í samstarfi við lúxusúraframleiðandann Audamars Piguet.

Erlendir miðlar, AFP og Daily Mail, greina frá því að loka hafi þurft fjölda verslana vegna troðnings, slagsmála og átaka á milli viðskiptavina og öryggisvarða.

Var lögregla kölluð út í borgum á borð við Manchester, Birmingham, Cardiff, London, París og Mílanó þar sem mikill mannfjöldi safnaðist saman fyrir utan verslanirnar

Úrin eru sem fyrr segir seld í takmörkuðu magni á um 335 pund, jafnvirði rúmlega 58 þúsund íslenskra króna. Mikill endursölumarkaður hefur þó skapast í kringum vöruna og hafa sum úr verið auglýst á allt að hálfa milljón króna á netinu.

Myndbönd sem birtust á samfélagsmiðlum sýna fólk ryðjast inn í verslanir, ýta öðrum frá og slást í röðum sem mynduðust utan við verslanirnar. Í Manchester var tilkynnt um slagsmál í Trafford Centre verslunarmiðstöðinni og í París beitti lögregla táragasi til að dreifa um 300 manna hópi sem safnast hafði saman fyrir utan verslun Swatch. Þá voru einnig tilkynnt átök í Mílanó á Ítalíu og einn var handtekinn í Cardiff.

Swatch brást við með því að loka hluta verslana sinna tímabundið í Bretlandi, Evrópu og Bandaríkjunum. Fyrirtækið hvatti viðskiptavini til að sýna ró og minnti á að úrin yrðu áfram í sölu næstu mánuði, þrátt fyrir takmarkað magn í fyrstu sendingum.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem samstarfsverkefni Swatch og lúxusúraframleiðenda valda miklum æsingi. Langar biðraðir og endursölubrask var til dæmis áberandi í tengslum við samstarf fyrirtækisins við Omega og Blancpain.

Meðfylgjandi er myndband frá Daily Mail:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Dularfullur fundur í grískum helli

Dularfullur fundur í grískum helli
Pressan
Í gær

Flestir nota USB-tengið bara fyrir rafmagn en það getur miklu meira en það

Flestir nota USB-tengið bara fyrir rafmagn en það getur miklu meira en það
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hryllingurinn á sveitabænum – 4 ára stúlka svaraði í símann – „Mamma er orðin svört“

Hryllingurinn á sveitabænum – 4 ára stúlka svaraði í símann – „Mamma er orðin svört“
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Hann veitti mér frábærar fullnægingar“ – „Af hverju ríðum við ekki?“

„Hann veitti mér frábærar fullnægingar“ – „Af hverju ríðum við ekki?“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fyrrum yfirmaður bresku leyniþjónustunnar MI6 segir að eitt geti brotið Pútín

Fyrrum yfirmaður bresku leyniþjónustunnar MI6 segir að eitt geti brotið Pútín
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þess vegna ættirðu að setja ólífuolíu út í kaffið þitt

Þess vegna ættirðu að setja ólífuolíu út í kaffið þitt