fbpx
Föstudagur 10.apríl 2026
Pressan

Keyptu heilt þorp í Frakklandi – Réðu ekki við að kaupa fasteign heima fyrir

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 1. ágúst 2022 18:00

La Busliere í Normandy. Mynd:Channel4

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýlega var franska þorpið La Busliere í Normandy selt fyrir sem svarar til 3,6 milljóna íslenskra króna. Í þorpinu eru sex íbúðarhús, tvær hlöður, vinnustofa, brunnur, brauðofn, safapressa og hestagerði.

Kaupendurnir eru hjónin Paul Mappley og Yip Ward frá Bretlandi. Þeir eru 48 ára skrúðgarðyrkjumenn. Þeir bjuggu áður í hjólhýsi i Tunbridge Wells í Kent á Englandi því hátt fasteignaverð gerði að verkum að þeir gátu ekki keypt sér fasteign þar.

Þeir hyggjast gera franska þorpið að lúxus sumardvalarstað.

Paul Mappley og Yip Ward eru ánægðir með kaupin. Mynd:Channel 4

 

 

 

 

 

Fjallað var um þetta í þættinum „HelpWe Bougtht A Village!“ á Channel 4 nýlega.

Yip sagði að þeir hafi í raun aldrei átt möguleika á að kaupa fasteign í Kent, lágmarksverð fyrir litla eign sé um 50 milljónir. Þeir hafa því alltaf leigt og bjuggu síðast í hjólhýsi sem vinur þeirra á.

Þegar ákveðið var að selja hjólhýsið á síðasta ári þurftu þeir að taka ákvörðun um framtíðina og fyrir valinu varð að kaupa La Busliere eftir að þeir heyrðu um það hjá vini sínum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Óttast að mannrán hafi verið framið á annan í páskum

Óttast að mannrán hafi verið framið á annan í páskum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Óttast endurkomu hættulegs barnasjúkdóms eftir samdrátt í bólusetningum

Óttast endurkomu hættulegs barnasjúkdóms eftir samdrátt í bólusetningum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Læknir segir að þessi næringarefni séu nauðsynleg fyrir alla yfir sextugu

Læknir segir að þessi næringarefni séu nauðsynleg fyrir alla yfir sextugu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Allt brjálað í Bretlandi vegna Kanye West

Allt brjálað í Bretlandi vegna Kanye West
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fyrrum foringi í flughernum segir að geimverur hafi aftengt bandarísk kjarnorkuvopn í kalda stríðinu

Fyrrum foringi í flughernum segir að geimverur hafi aftengt bandarísk kjarnorkuvopn í kalda stríðinu
Pressan
Fyrir 4 dögum

Viltu vita hver andlegi aldur þinn er? – Þá þarftu bara að telja hundana

Viltu vita hver andlegi aldur þinn er? – Þá þarftu bara að telja hundana
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þess vegna er best að þurrka leirtauið ekki með viskastykki

Þess vegna er best að þurrka leirtauið ekki með viskastykki
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þetta getur gefið til kynna að þú fáir of lítið prótín

Þetta getur gefið til kynna að þú fáir of lítið prótín