

Maikel Mesa, knattspyrnumaður sem spilar með spænska liðinu Tenerife, hefur verið dæmdur í átta mánaða fangelsi eftir árás á dómara á Spáni.
Mesa játaði sök ásamt tveimur öðrum mönnum fyrir dómi í borginni La Laguna á Tenerife og eru dómarnir því endanlegir.
Leikmaðurinn var fundinn sekur um líkamsárás, en mennirnir stálu auk þess farsíma dómarans eftir árásina.

Samkvæmt dómnum kölluðu þeir fórnarlambið meðal annars sköllóttan fávita áður en þeir réðust á hann. Mesa ku hafa kýlt dómarann í kjálkann á meðan annar maður skallaði hann í andlitið.
Þegar dómarinn sagði frá því við hvað hann starfaði svaraði einn mannanna engu að síður með því að taka gleraugun hans og kasta þeim í jörðina.
Síðar var farsíma dómarans stolið og honum ýtt niður bílastæðaramp þar sem hann hlaut meðal annars nefblæðingar og aðra áverka á andliti. Fórnarlambið var eðlilega slegið eftir uppákomuna.
Auk fangelsisdómsins þarf Mesa að greiða samtals 1200 evrur í sekt.
Mesa er 35 ára gamall og lék hann 16 leiki fyrir Tenerife er liðið komst upp úr spænsku C-deildinni í vetur. Skoraði miðjumaðurinn tvö mörk og lagði upp tvö til viðbótar.
Hann á einnig að baki feril með liðum eins og Osasuna og Las Palmas. Eini leikur hans í efstu deild Spánar, La Liga, kom með fyrrnefnda liðinu.
Ekki er vitað hvernig Tenerife bregst við í málinu, en Mesa á eitt ár eftir af samningi sínum við félagið.