fbpx
Föstudagur 05.júní 2026
Pressan

Lýsir skelfilegri hákarlaárás í smáatriðum

Pressan
Föstudaginn 5. júní 2026 16:30

Alejo má teljast heppinn að ekki fór verr.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tvítugur brimbrettamaður hlaut alvarlega áverka á fæti þegar hákarl réðst á hann við afskekkta strönd í Nýju Suður-Wales í Ástralíu. Maðurinn segir að hann hafi verið afar heppinn að hafa sloppið lifandi frá árásinni.

Maðurinn, hinn tvítugi Alejo Santiñaque, var á brimbretti sínu nálægt Red Cliff, um 660 kílómetra norður af Sydney, þegar hann fann skyndilega fyrir öflugu höggi fann hvernig eitthvað togaði í fót hans.

Hann var ekki lengi að átta sig á því að hákarl hafði bitið hann og dregið ofan í sjóinn. Brást hann við með því að sparka af öllum mætti í dýrið þar til það sleppti takinu.

Vissi ekki hvort hákarlinn kæmi aftur

Að sögn Santiñaque flæktist hákarlinn í öryggisól sem tengdi hann við brimbrettið og slitnaði ólin í hamaganginum.

„Þegar hann sleppti mér synti ég eins hratt og ég gat aftur að brettinu mínu og í átt að landi,“ sagði hann. Hann lýsti augnablikunum eftir árásina sem afar ógnvekjandi þar sem hann vissi ekki hvort hákarlinn myndi snúa aftur.

Vinir hans voru á ströndinni þegar atvikið átti sér stað og veittu þeir honum skyndihjálp með því að setja teygjubindi á fótinn þar til sjúkraflutningamenn komu á vettvang. Santiñaque var í kjölfarið fluttur á sjúkrahús þar sem hann gekkst undir aðgerð.

Hann segir bit hákarlsins hafa verið öflugt og hann hafi rifið sig í gegnum húð og vöðva, auk þess sem ein sin slitnaði og fleiri urðu fyrir skemmdum. Hins vegar hafi engar stórar slagæðar orðið fyrir skaða og fyrir það sé hann þakklátur.

„Miðað við hvað hefði getað gerst var ég mjög heppinn,“ skrifaði hann í færslunni sem ástralskir fjölmiðlar vitna til.

Sýnir hákarlinum fullan skilning

Þrátt fyrir lífsreynsluna segist Santiñaque ekki kenna hákarlinum um það sem gerðist. Hann bendir á að hafið sé náttúrulegt heimili hákarla og þeir séu rándýr sem bjarga sér með því að éta það sem að kjafti þeirra kemur. Bendir hann á að þeir sem stundi sjósport taki alltaf ákveðna áhættu með því að fara út í sjóinn.

„Hákarlar eru ekki illmenni eða skrímsli. Þeir eru villt dýr og mikilvægur hluti vistkerfis hafsins,“ sagði hann.

Viðbrögð við frásögn hans hafa vakið athygli á samfélagsmiðlum þar sem margir hafa hrósað honum fyrir yfirvegun og fyrir að sýna dýrinu skilning þrátt fyrir árásina.

Íbúar á svæðinu hafa jafnframt greint frá því að hákarlar hafi sést nærri ströndinni undanfarna daga þar sem þeir hafa verið að elta torfur af smáfiski. Þá hafa þeir varað fólk við að fara í sjóinn þegar skyggja tekur eða þegar fiskitorfur sjást nálægt landi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Verður fljótandi borg að veruleika? – Hýsir 80 þúsund manns með risastórum íþróttavelli, söfnum og vatnsrennibrautagarði

Verður fljótandi borg að veruleika? – Hýsir 80 þúsund manns með risastórum íþróttavelli, söfnum og vatnsrennibrautagarði
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sviðsetti beina útsendingu á YouTube á meðan hann myrti þungaða kærustu sína

Sviðsetti beina útsendingu á YouTube á meðan hann myrti þungaða kærustu sína
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fundu lík í tengslum við röð dularfullra mannshvarfa og dauðsfalla meðal bandarískra vísindamanna

Fundu lík í tengslum við röð dularfullra mannshvarfa og dauðsfalla meðal bandarískra vísindamanna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Lögregla rannsakar dularfulla holræsamenn – „Hvað er eiginlega í gangi?“

Lögregla rannsakar dularfulla holræsamenn – „Hvað er eiginlega í gangi?“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Ferðalag fjögurra manna fjölskyldu í brúðkaup breyttist í martröð

Ferðalag fjögurra manna fjölskyldu í brúðkaup breyttist í martröð
Pressan
Fyrir 4 dögum

UAP-afhjúpun á tröppum þinghússins í Washington: Nýr kafli í UFO-umræðunni?

UAP-afhjúpun á tröppum þinghússins í Washington: Nýr kafli í UFO-umræðunni?