Þetta kemur fram í tilkynningu frá NASA. Áætlunin um að senda fólk til tunglsins 2024 var tekin á valdatíma Donald Trump en hann ákvað að aftur yrði farið að senda fólk til tunglsins og að það yrði hluti af Artemis-áætluninni.
Þessar ferðir eru taldar mikilvægt skref í áætlunum um að senda fólk til Mars.
En frá því að Artemis-áætlunin var kynnt til sögunnar hafa ýmis vandamál komið upp sem hafa nú orðið til að henni seinkar. Meðal annars er þetta óeining um hvaða geimfar á að flytja geimfarana til tunglsins.
Jeff Bezos, stofnandi Amazon netverslunarinnar, höfðaði mál gegn NASA eftir að geimferðafyrirtæki hans, Blue Origin, tapaði kapphlaupinu um að smíða geimfar fyrir tunglferðirnar. Það var SpaceX, fyrirtæki Elon Musk, sem hafði betur. NASA hafði sigur í málinu í síðustu viku.
Bill Nelson, forstjóri NASA, segir að málshöfðunin hafi seinkað verkefninu um tæplega sjö mánuði og því verði væntanlega ekki hægt að senda fólk til tunglsins fyrr en 2025. Vegna málshöfðunarinnar mátti NASA ekki vera í neinum samskiptum við SpaceX og því gerðist lítið sem ekkert á meðan.
NASA reiknar með að senda ómannað geimfar til tunglsins í febrúar á næsta ári. Mönnuð geimferð er á dagskrá 2024 en þá verður farið í hringflug um tunglið. Fólk hefur ekki stigið fæti á tunglið síðan 1972 þegar Apollo 17 lenti þar.