fbpx
Miðvikudagur 03.júní 2026
Fréttir

Kærðu fiskþurrkun Samherja – Valdi óásættanlegum óþef og hávaða og mengað frárennsli renni út í náttúruna

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 2. júní 2026 20:30

Fiskþurrkun, sem nú er í eigu Samherja, á Laugum í Reykjadal hefur lengi verið umdeild. Mynd: Skjáskot/Já.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur vísað frá kæru vegna útgáfu starfsleyfis fyrir svokallaða heitlofts­þurrkun fiskafurða að Laugum í Reykjadal í Þingeyjarsveit. Handhafi starfsleyfisins er Samherji Ísland ehf. sem er hluti af Samherjasamstæðunni. Segir í kærunni að starfsemin hafi í töluverðan tíma valdið lyktar og hávaðamengun en einnig komi þaðan mengað frárennsli.

Fiskþurrkun hefur verið rekin á Laugum síðan á áttunda áratug síðustu aldar. Íbúar á svæðinu hafa kvartað undan óþef og hávaða frá starfseminni í töluverðan tíma. Samherji ætlaði sér að hætta starfseminni en ákvað síðan að ráðast í endurbætur með meðal annars uppsetningu mengunarvarnarbúnaðar. Fiskþurrkunin er rekin undir merkjum Útgerðarfélags Akureyringa en Samherji er eigandinn og handhafi starfsleyfisins.

Í úrskurði nefndarinnar segir að Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra hafi gefið út starfsleyfi fyrir heitloftsþurrkuninni í september 2011 til handa Útgerðarfélagi Akureyringa ehf., sem sameinast hafi Samherja Íslandi ehf. á árinu 2023, fyrir þurrkun á hausum og beinum til útflutnings. Hafi gildistími leyfisins  verið til 26. september 2023.

Hálfum mánuðum áður en leyfið rann út hafi verið birt tillaga að nýju starfsleyfi. Á fundi heilbrigðisnefndar umdæmisins hafi síðan verið samþykkt að starfsleyfi yrði gefið út að umsagnarfresti liðnum, nema athugasemdir sem kynnu að berast við tillöguna gæfu tilefni til annars. Að loknum athugasemdafresti hafi nefndin tekið umsókn að starfsleyfi fyrir að nýju á fundi í nóvember 2023. Í fundargerð þess fundar komi fram að athugasemdir hafi borist vegna lyktar og hávaða af völdum starfseminnar sem og vegna hreinsunar frárennslis, staðsetningar auk annarra atriða. Hafi nefndin lagt til að í starfsleyfi yrðu gerðar auknar kröfur til mengunarvarna og vöktunar umfram það sem gert hefði verið í auglýstri tillögu. Hafi starfsmönnum heilbrigðiseftirlitsins verið falið að gefa út starfsleyfi með gildistíma í eitt ár. Sama dag hafi eftirlitið gefið  leyfið út og gildistími þess  verið til 15. nóvember 2024.

Mengun

Á fundi heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra 18. september 2024 var tekið fyrir og samþykkt erindi Samherja um að framlengja gildistíma leyfisins til 15. maí 2025 vegna breyttra forsendna. Hinn 9. apríl 2025 tók nefndin fyrir nýtt erindi frá Samherja um framlengingu á gildistíma. Tekið var fram að fyrir lægi úrbótaáætlun sem gerði ráð fyrir að úrbótum yrði lokið í byrjun nóvember það ár. Samþykkti nefndin að leyfið yrði framlengt til 15. nóvember 2025 en tók fram að forsenda þess að nýtt starfsleyfi yrði gefið út væri að unnið yrði samkvæmt innsendri úrbótaáætlun og að þær kröfur sem fram kæmu í starfsleyfi yrðu uppfylltar.

Undir lok nóvember 2025 var auglýst tillaga að nýju starfsleyfi fyrir heitloftsþurrkunina. Á fundi heilbrigðisnefndar Norðurlands Eystra sama dag var samþykkt að starfsleyfið yrði gefið út að umsagnarfresti liðnum, nema athugasemdir sem kynnu að berast gæfu tilefni til annars. Fjórar athugasemdir bárust á kynningartíma. Fyrir hönd heilbrigðisnefndar gaf heilbrigðisfulltrúi heilbrigðiseftirlitsins út starfs­leyfi fyrir heitloftsþurrkun fiskafurða 12. janúar 2026 með gildistíma til 12. janúar 2038 og segir í leyfinu að heimilt sé að taka á móti allt að 8.000 tonnum af hráefni árlega.

Kæra

Tveir einstaklingar lögðu í kjölfarið fram sameiginlega kæru vegna veitingu nýs starfsleyfis fyrir starfsemina.

Í kærunni kom fram að annar þeirra sé búsettur í næsta nágrenni og eigi fasteign skammt frá, auk þess sem hann stundi atvinnurekstur á svæðinu. Þá sé æskuheimili hins kærandans við hlið verksmiðjunnar og þar sé hann með „varanlegt hjólhýsi“. Hann komi reglulega þangað til dvalar, en mengun frá starfseminni skerði möguleika hans til dvalar og nýtingu eignarinnar.

Sögðu kærendurnir að í greinargerð vegna starfsleyfisins kæmi fram að við endur­nýjun starfsleyfis árið 2023 hafi komið í ljós að þessi umrædda verksmiðja að Laugum í Reykjadal uppfyllti ekki nútímakröfur um hreinsun frárennslisvatns og meðferð útblásturslofts. Það sé vægt til orða tekið, enda hafi lengi verið ljóst að verksmiðjan hafi engar kröfur uppfyllt hvað þetta varði.

Í greinargerðinni kæmi fram að heilbrigðisnefnd Norðurlands Eystra bendi á að forsenda fyrir endurnýjun leyfisins væru úrbætur á mengunarvarnarbúnaði sem gerðar hafi verið til að mæta kröfum þar um. Það hafi verið mat nefndarinnar að synjun á útgáfu leyfisins væri ekki í samræmi við meðalhófsreglu, enda færi starfsemin fram á skilgreindu iðnaðarsvæði og væri í samræmi við gildandi skipulag. Af þessari umfjöllun væri engan veginn ljóst hvaða úrbætur hafi verið gerðar á starfseminni eða hvort þær væru fullnægjandi.

Ólykt, hávaði, frárennsli

Kom enn fremur fram í kærunni að starfsemi fiskþurrkunarstöðvarinnar hafi um árabil valdið verulegri, margháttaðri og óásættan­legri mengun, einkum í formi ólyktar sem fari langt fram úr því sem nærliggjandi íbúum sé skylt að þola. Mengað frárennsli renni í vatnasvæði Laxár í Aðaldal með viðkomu í Eyvindar­læk og Vestmannsvatni auk þess sem að starfseminni fylgi mikil hávaðamengun sem lýsi sér í sífelldum hvini. Íbúar á svæðinu hafi ítrekað og árum saman kvartað yfir þessum mengunarþáttum, en leyfishafi (Samherji) hafi þó ekkert aðhafst vegna þessa.

Vildi kærendur enn fremur meina að mengun af völdum starfseminnar brjóti gegn markmiðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Starfsemi verksmiðjunnar væri jafnframt í andstöðu við þær grundvallarskyldur rekstraraðila samkvæmt reglugerð um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit að gera allar viðeigandi ráðstafanir til að koma í veg fyrir mengun og að starfsemin leiði ekki til umtalsverðrar mengunar.

Leyfa

Kröfðust kærendur þess að ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins yrði felld úr gildi. Heilbrigðiseftirlit Norðurlands Eystra andmælti því og sagði að við útgáfu starfsleyfisins í janúar síðastliðnum hafi verið tekið tillit til þeirra athugasemda sem hefðu borist. Starfsleyfið hafi verið gefið út með hertum skilyrðum og auknum kröfum um vöktun og eftir­fylgni, auk ákvæðis um heildarendurskoðun leyfisins innan tveggja ára frá gildistöku þess.

Vísaði eftirlitið einnig til þess að sérstakt tillit hefði verið tekið til langvarandi óþæginda vegna lyktar og hávaða. Í starfsleyfið hafi verið sett ítarleg skilyrði um lofthreinsun útblásturslofts með ósonbúnaði og þvottaturni og kröfur gerðar um vinnslu fersks hráefnis og að komið yrði í veg fyrir uppsöfnun úrgangs. Einnig hafi verið sett skilyrði um hávaðavarnir og úttekt á hávaða eftir að starfsemi hefjist á ný.

Í starfsleyfinu væri jafnframt gerð krafa um reglubundna vöktun frárennslis og viðtaka, sem og skil gagna í samræmi við kerfi stjórnar vatnamála. Með þessum skilyrðum væri tryggt að heilbrigðiseftirlitið hafi raunhæf úrræði til að fylgjast með áhrifum starfseminnar og grípa til viðeigandi ráðstafana reynist þess þörf.

Framfarir

Í andsvörum Samherja vegna kærunnar kom fram að miklar framfarir hafi orðið í mengunarvörnum. Vissulega fylgdi lykt, hávaði og frárennslismengun starfseminni ef engum mengunarvörnum væri beitt og hafi það átt við um fjölda annarra fyrirtækja á árum áður. Í samræmi við auknar kröfur hafi verið settur upp hreinsunarbúnaður fyrir frárennsli og útblástur og hljóðvarnir bættar.

Við endurskoðun eldra starfsleyfis hafi komið í ljós að ef starfsemin ætti að halda áfram þyrfti að fjárfesta í búnaði til hreinsunar, bæði á frárennslisvatni og lofti frá vinnslunni. Þær endurbætur sem hafi þurft að ráðast í hafi verið tímafrekar og því hafi eldra starfsleyfi verið framlengt svo hægt væri að framkvæma endurbætur.

Fyrir lægi nýleg hljóðmæling sem hafi sýnt að hljóð hafi í einhverjum tilvikum verið nærri settum viðmiðunarmörkum. Unnið hafi verið að því að greina uppruna hávaða og ráðist í aðgerðir til að bæta hljóðvist, m.a. hafi búnaður verið endurnýjaður og settar hafi verið upp hljóðgildrur. Uppsetning búnaðar vegna mengunarvarna hafi síðan staðið yfir á meðan ekki hafi verið í gildi starfsleyfi. Það væri nauðsynlegt að hafa starfsemina í gangi til að endurtaka mætti mælinguna og meta árangur aðgerða. Mælingar myndu eiga sér stað þegar starfsemin yrði á fullum afköstum.

Umkvartanir

Kærendur sögðu í athugasemdum við þessum andsvörum að í umsögn Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra hafi ekkert verið minnst á umkvartanir íbúa svæðisins í yfir áratug heldur væri Samherja veittur frestur til að reyna úrbætur sem óvíst væri hvort einhverju myndu breyta. Á meðan þyrftu íbúar að búa við það að vera eins konar tilraunadýr. Enn fremur hafi ekkert verið minnst á að ítrekað hafi verið brotið gegn fyrra starfsleyfi án þess að heilbrigðiseftirlitið hafi brugðist við.

Í niðurstöðu úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála segir að Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra hafi skort valdheimildir til að taka ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins. Heilbrigðisnefnd umdæmisins hafi átt að gera það. Nefndin hafi ekki samþykkt formlega að fela eftirlitinu heimildir til slíkra ákvarðana eins og því hafi borið að gera samkvæmt lögum.

Við útgáfu leyfisins hafi Heilbrigðiseftirlit Norðurlands Eystra farið út fyrir valdsvið sitt og því verði að líta svo á að um tillögu til heilbrigðisnefndarinnar sé að ræða. Þar sem hún hafi ekki tekið lokaákvörðun um útgáfu leyfisins verði að líta svo á að ekki liggi fyrir kæranleg stjórnvaldsákvörðun og því verði að vísa málinu frá nefndinni.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Stefán kennari biðlar til nýja meirihlutans: „Hnekkið þessari ákvörðun STRAX!“

Stefán kennari biðlar til nýja meirihlutans: „Hnekkið þessari ákvörðun STRAX!“
Fréttir
Í gær

Þetta verður síðasti opnunardagur Kjötborgar – „Takk!“

Þetta verður síðasti opnunardagur Kjötborgar – „Takk!“