fbpx
Miðvikudagur 03.júní 2026
Fréttir

Stefán kennari biðlar til nýja meirihlutans: „Hnekkið þessari ákvörðun STRAX!“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 1. júní 2026 17:30

Stefán Steingrímur Bergsson og meirihlutinn í Reykjavík. Samsett mynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stefán Steingrímur Bergsson, kennari í Laugalækjaskóla, biðlar til nýja meirihlutans í borgarstjórn Reykjavíkur um að breyta strax ákvörðun borgarinnar um að fresta framkvæmdum við skólann vegna myglu.

Í grein sem Stefán skrifar á Vísi lýsir hann þeim níu árum sem hann hefur starfað við unglingaskólann.

„Á þessum árum hef ég:

– Leitað til læknis vegna slappleika og slens og lítils þreks: mygla.

– Borðað hádegismat og kaffi baksviðs í gluggalausu rými: mygluviðgerðir.

– Horft upp á samstarfsfólk mitt verða fyrir heilsubresti: mygla.

– Horft upp á nemendur verða fyrir heilsubresti: mygla.

– Kennt í leigðum sal út í bæ: mygluviðgerðir.“

Myglan og loftleysið hafi einkennt öll níu árin sem hann hefur starfað við Laugalækjaskóla. „Myglan og loftleysið hefur einkennt skólastarfið öll mín kennsluár í Laugalækjarskóla. Ef ekki væri fyrir frábært samstarfsfólk, fróðleiksfúsa nemendur og skynsama foreldra væri ég kannski hættur. Skólinn er góður þó myglan sé slæm,“ skrifar Stefán.

Staðan í dag sé sú að stjórnendagangur skólans með sex skrifstofurýmum og einu fundarherbergi er grútmyglaður. Verktaki sé tilbúinn að ráðast í framkvæmdir strax í sumar. „EN!

„Nú er ekki lengur til peningur og framkvæmdum frestað“ kemur skyndilega frá borginni.

Þegar ég heyrði þetta fyrst fylltist ég mikilli reiði, allt að því bræði.

Þessi ákvörðun er ekki verjandi, henni verður að hnekkja. Ég, nemendur mínir og stjórnendur skólans verðum að geta unnið í ásættanlegu rými.“

Vísar hann svo í þegar Sigríður Heiða Bragadóttir hætti sem skólastjóri skólans árið 2023 eftir sautján ára starf. Skemmdir á skólanum komu í ljós 2016 og gengu framkvæmdir hægt, hún ætlaði að starfa lengur en gat það ekki vegna áhrifa myglu á heilsu hennar.

Stefán vill að eitthvað sé gert strax og vísar til slagorðs Sjálfstæðisflokksins í nýafstaðinni kosningabaráttu í Reykjavík: „Nú reynir á kjörna fulltrúa nýs meirihluta borgarstjórnar að standa undir loforðum um forgangsröðun verkefna borgarinnar. Til þeirra segi ég: breytið þessu, breytið þessu sem allra fyrst svo verktakinn geti byrjað strax um miðjan júní. Standið undir vígorði kosningabaráttunnar og hnekkið þessari ákvörðun STRAX!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Sigurður Fannar var andlega kvalinn og átti erfitt með að horfast í augu við það sem hann hafði gert

Sigurður Fannar var andlega kvalinn og átti erfitt með að horfast í augu við það sem hann hafði gert
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

190 verkefni á verkefnalista meirihluta borgarstjórnar – Þessu ætlar hann að breyta í borginni

190 verkefni á verkefnalista meirihluta borgarstjórnar – Þessu ætlar hann að breyta í borginni
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Jón Viðar vill ekki raska grafarrónni á Þingvöllum: „Hvað gengur að þessu fólki?!!“

Jón Viðar vill ekki raska grafarrónni á Þingvöllum: „Hvað gengur að þessu fólki?!!“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Geymdi yfir 30 milljónir í peningaskáp í Hveragerði

Geymdi yfir 30 milljónir í peningaskáp í Hveragerði
Fréttir
Í gær

Hvalur hf vill að leyft verði að nota hvalkjöt í dýrafóður – Segja íslenskar reglur vera „gullhúðun“

Hvalur hf vill að leyft verði að nota hvalkjöt í dýrafóður – Segja íslenskar reglur vera „gullhúðun“
Fréttir
Í gær

Afhentu Alzheimersamtökunum 3.205.201 króna styrk

Afhentu Alzheimersamtökunum 3.205.201 króna styrk