

Einn af þingmönnum Svíþjóðardemókrata hefur sagt af sér þingmennsku eftir að upp úr krafsinu kom að hann sé til rannsóknar hjá lögreglu vegna gruns um vörslu barnakláms. Leiðtogar flokksins segja þingmanninn hafa hætt af persónulegum ástæðum og vildu lítið tjá sig að öðru leyti um málið. Töluvert uppnám hefur skapast innan flokksins vegna málsins.
Sænska ríkissjónvarpið, SVT, greinir frá þessu. Miðað við fréttir þess virðist þó ekki útilokað að þingmaðurinn sé einnig grunaður um hafa tekið þátt í framleiðslu barnaníðsefnisins. Sænsku lögreglunni hafi borist upplýsingar um miðjan apríl síðastliðinn frá bandarískum samtökum um brot sem tengdust barnaníðsefni á óþekktum stað í Svíþjóð. Það er ekki skýrt tekið fram hvort málið snúist eingöngu um vörslu á slíku efni eða einnig framleiðslu á því. Þó virðist það fyrra eiga fremur við um þingmanninn sem þegar hefur verið yfirheyrður af lögreglu sem hefur einnig lagt á snjalltæki í hans eigu og eru tækin nú til rannsóknar.
Þegar SVT leitaði viðbragða þingmannsins og óskaði eftir að hann tjáði sig um málið hætti hann að svara skilaboðum. Í kjölfarið bárust fregnir af afsögn hans og virðist hann því hafa haldið því leyndu að hann sætti rannsókn og ætlað sér að halda starfi sínu áfram eins og ekkert hefði í skorist þar til SVT hafði samband við hann. Þegar SVT gerði það hafði þingmaðurinn þegar verið yfirheyrður af lögreglunni.
Þingmaðurinn er ekki nafngreindur enda mun slíkt ekki vera heimilt í Svíþjóð á meðan sakamálarannsókn stendur.
Í kjölfar þess að SVT hafði samband við þingmanninn tilkynnti hann flokksforystunni um afsögn sína. Segir SVT að þingmaðurinn hafi verið í nokkuð stóru hlutverki hjá Svíþjóðardemókrötum og sinnt ábyrgðarstöðum á þingi fyrir hönd flokksins.
Í tilkynningu frá Svíþjóðardemókrötum kom fram að þingmaðurinn hefði tilkynnt flokknum og skrifstofu þingsins að hann segði af sér þingmennsku af persónulegum ástæðum.
Honum mun þó hafa verið vísað úr flokknum sem sagði í tilkynningu að það væri ekki hlutverk hans að tjá sig um fregnir af því hvers vegna þingmaðurinn er til rannsóknar.
Linda Lindberg formaður þingflokks Svíþjóðardemókrata vildi í fyrstu ekki svara blaðamönnum öðru um málið en því að þingmaðurinn hefði tilkynnt um afsögn af persónulegum ástæðum og meira um það hefði hún ekki að segja.

Hún bætti því hins vegar við síðar að málið liti ekki vel út. Lagði hún áherslu á að hún vissi ekkert meira um málið en fram hefði komið í fjölmiðlum.
Sá sem mun taka við þingsætinu sagðist ánægður með að taka sæti á þingi þótt ástæðan fyrir því væri sannarlega ekki ánægjuleg. Nýi þingmaðurinn heitir Daniel Spiik og er reynslumikill í sveitarstjórnarmálum en hann hefur setið í borgarstjórn Örebro fyrir Svíþjóðardemókrata síðan árið 2006. Það hvaðan nýi þingmaðurinn kemur gefur óneitanlega til kynna úr hvaða kjördæmi hinn grunaði þingmaður sé.
Málið kemur ekki upp á góðum tíma fyrir Svíþjóðardemókrata en þingkosningar fara fram í Svíþjóð í september en flokkurinn hefur sett stefnuna á að taka sæti við ríkisstjórnarborðið í fyrsta sinn í sögunni en ekki eingöngu verja ríkisstjórn falli, gegn því að hafa áhrif á stjórnarstefnuna, eins og raunin hefur verið á þessu kjörtímabili.
Mats Knutson stjórnmálaskýrandi SVT bendir á að Jimmie Åkesson leiðtogi flokksins hafi kallað eftir harðari aðgerðum gegn þeim sem misnoti börn og ungmenni kynferðislega. Trúverðugleiki flokksins í þessum málum hafi hins vegar beðið hnekki þar sem þingmaðurinn hafi gegnt stóru hlutverki og mikilvægum stöðum í flokknum.

Knutson segir ásakanirnar á hendur þingmanninum hafa valdið miklu uppnámi innan Svíþjóðardemókrata. Þingmenn flokksins greini honum frá því að grátið hafi verið á flokkskrifstofunni. Þingmenn hafi einnig sagt honum að það sé þeim áfall að náinn samstarfsmaður þeirra sé sakaður um slík brot og þetta varpi neikvæðu ljósi á flokkinn.
Knutson segir að helsta verkefni flokksins nú að takmarka eins og hægt sé pólitísku áhrifin af málinu en á meðan falli önnur mál í skuggann. Hann nefnir í því samhengi að áðurnefnd Linda Lindberg hafi á blaðamannafundi flokksins sem átti að snúast um umönnun aldraðra aðeins verið spurð um þetta mál.
Í síðustu kosningum fengu Svíþjóðardemókratar 73 þingsæti og eru næst stærsti flokkurinn á þingi. Samkvæmt könnunum undanfarið stefnir í, að óbreyttu, að fylgi þeirra og þar með fjöldi þingsæta minnki eilítið í kosningunum en þó ekki svo mikið að flokkurinn haldi ekki stöðu sinni sem næst stærsti flokkurinn. Hvort þetta mál mun einhver áhrif hafa á fylgið og lifa fram í september, þegar kosið verður, á hins vegar eftir að koma í ljós.