fbpx
Miðvikudagur 03.júní 2026
Fréttir

Þetta verður síðasti opnunardagur Kjötborgar – „Takk!“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 1. júní 2026 17:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rétt í þessu var tilkynnt að síðasti opnunardagur verslunarinnar Kjötborgar, á Ásvallagötu í Reykjavík, verði 20. júní næstkomandi.

Áður hefur verið greint frá því að húsnæði verslunarinnar hafi verið selt og að verslunin myndi loka en hún hefur verið starfrækt í þessu húsnæði frá 1981. Þarna hefur raunar verið verslunarrekstur í hartnær öld.

Verslunin er ein þekktasta og ástsælasta hverfisverslun landsins. Um hana hefur verið m.a. gerð samnefnd heimildarmynd en bræðurnir Gunnar og Kristján Jónassynir hafa rekið verslunina síðustu áratugi en áður en hún flutti í Vesturbæinn var hún í Smáíbúðahverfinu. Ljóst er að margir íbúar Vesturbæjarins og þótt víðar væri leitað munu sakna viðkiptanna við bræðurna.

Kristján og Gunnar Jónassynir

Á Facebook-síðu Kjötborgar segir að þann 20. júní verði verslunin opin þangað til birgðir klárast og eru allir hvattir til að kíkja við og versla nauðsynjar eða eitthvað sniðugt og kveðja verslunina með stæl því allt eigi að seljast.

Þeir sem eiga eftir að greiða reikninga frá versluninni eru beðnir um að ganga frá greiðslu sem fyrst. Segir að lokum í tilkynningunni um síðasta opnunardaginn:

„TAKK!“

„Gunnar og Kristján vilja nýta tækifærið og þakka öllum þeim sem hafa lagt leið sína í verslunina í gegnum árin og áratugina. Stuðningurinn, tryggðin, vináttan og velvildin er það sem hefur haldið þeim gangandi allan þennan tíma.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Sigurður Fannar var andlega kvalinn og átti erfitt með að horfast í augu við það sem hann hafði gert

Sigurður Fannar var andlega kvalinn og átti erfitt með að horfast í augu við það sem hann hafði gert
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

190 verkefni á verkefnalista meirihluta borgarstjórnar – Þessu ætlar hann að breyta í borginni

190 verkefni á verkefnalista meirihluta borgarstjórnar – Þessu ætlar hann að breyta í borginni
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Jón Viðar vill ekki raska grafarrónni á Þingvöllum: „Hvað gengur að þessu fólki?!!“

Jón Viðar vill ekki raska grafarrónni á Þingvöllum: „Hvað gengur að þessu fólki?!!“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Geymdi yfir 30 milljónir í peningaskáp í Hveragerði

Geymdi yfir 30 milljónir í peningaskáp í Hveragerði
Fréttir
Í gær

Hvalur hf vill að leyft verði að nota hvalkjöt í dýrafóður – Segja íslenskar reglur vera „gullhúðun“

Hvalur hf vill að leyft verði að nota hvalkjöt í dýrafóður – Segja íslenskar reglur vera „gullhúðun“
Fréttir
Í gær

Afhentu Alzheimersamtökunum 3.205.201 króna styrk

Afhentu Alzheimersamtökunum 3.205.201 króna styrk