

Hinn 23 ára gamli Vickrum Digwa var dæmdur til 21 árs fangelsi fyrir að myrða hinn 18 ára gamla Henry Nowak í Southhampton á Englandi 3. desember síðastliðinn. Nowak var aleinn á leiðinni heim eftir að hafa verið að skemmta sér með vinum þegar Digwa stakk hann fimm sinnum með 21 sentimetra löngum hníf.
Við réttarhöldin var sýnt sláandi myndefni úr búkmyndavél lögreglu sem sýnir lögregluna handtaka Nowak þegar hann liggur deyjandi í jörðinni. Hafði þá Digwa sagt lögreglu að Nowak hafi slegið túrban af höfði sínu, hann hefði meitt sig og hreytt í hann að hætti rasista.
Lögreglan birti myndefnið með leyfi fjölskyldu Nowak, þar heyrist hann segja „ég get ekki andað,“ og „ég var stunginn“ oftar en einu sinni. Lögreglan trúir hinum ekki og tilkynnir honum að hann sé handtekinn fyrir líkamsárás. Eftir nokkrar mínútur missir hann meðvitund.
Hér má sjá myndefnið úr búkmyndavélinni, athugið að innihaldið er ekki fyrir viðkvæma.
Málið hefur vakið mikla athygli í Bretlandi og sett í umræðuna fjölmenningu og mögulega hættu sem stafar af samskiptavandamálum milli ólíkra menningarheima. Samfélag Sikh í Bretlandi hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem áréttað var að hnífurinn sem var notaður var ekki trúarlegs eðlis, svokallað kirpan. Saksóknarar voru ekki sammála því en löglegt er að bera hníf opinberlega ef hægt er að færa sönnur fyrir því að hann sé trúarlegs eðlis. Margir hafa gagnrýnt lögregluna, þar á meðal auðkýfingurinn Elon Musk.
This poor boy was running away from someone who stabbed him & stole his phone, but the police in the UK attacked him instead of his murderer! https://t.co/SwnHHYec1d
— Elon Musk (@elonmusk) May 20, 2026
Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands hefur tjáð sig um málið og sagði það „hræðilegt“ og hann væri fylgjandi rannsókn á málinu.
This an awful, shocking case.
Henry’s loved ones have gone through the trauma of a long trial and endured Henry’s killer making up appalling claims about their son who was thoughtful, kind and deeply loved.
It is right that the IOPC is investigating the police’s response to… https://t.co/h7JAXXPMEQ
— Keir Starmer (@Keir_Starmer) June 1, 2026
Digwa var einnig sakfelldur fyrir að bera hníf á almannafæri, þá var móðir hans dæmd fyrir reyna að fela hnífinn fyrir lögreglu. Samkvæmt ákæru var Nowak stunginn fimm sinnum, í brjóstið, í andlitið og svo aftan á fótlegg. Hann stökk yfir grindverk til að flýja Digwa. Engin vitni voru af sjálfri árásinni.
Digwa sagði að Nowak hefði verið drukkinn og áreitt hann, í ljós kom við krufningu að áfengismagn í blóði Nowak var það lítið að hann hefði mátt keyra bíl. Sagði saksóknari að Digwa væri með vopn á heilanum en við leit á heimili hans fundust um tuttugu vopn. Robert France aðstoðarlögreglustjóri hefur beðist opinberlega afsökunar samkvæmt frétt BBC, bróðir Digwa hafi logið í símtali við neyðarlínu og aðstæður á vettvangi hafi verið „mjög flóknar“.
Mark Nowak, faðir Henry, flutti yfirlýsingu fyrir utan dómstólinn í dag. Henry hafi verið á fyrsta ári í háskóla og elskaður af öllum. Það væri óbærilegt að sjá hversu öðruvísi tekið var á Nowak og Digwa. „Hann átti ekki að deyja í haldi lögreglu á götum Southhampton,“ hefur Guardian eftir honum. Digwa hafi aftur á móti fengið mun blíðari móttökur lögreglu og ekki handjárnaður. Kallaði hann eftir rannsókn á vinnubrögðum lögreglu. „Henry dó ekki með reisn. Hann dó ekki eins og hann átti skilið. Hann missti meðvitund áður en nokkur trúði honum.“