fbpx
Miðvikudagur 03.júní 2026
Fréttir

Magyar leyfir gleðigönguna í Búdapest á ný

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 1. júní 2026 17:30

Peter Magyar boðar frjálslyndari tíma í Ungverjalandi. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ný ríkisstjórn Ungverjalands undir forystu Peter Magyar ætlar að leyfa gleðigönguna í Búdapest í ár. Gangan var bönnuð í stjórnartíð öfgahægrimannsins Viktor Orban.

„Lögreglan í Búdapest hefur samþykkt Búdapest Pride 2026 gönguna og hefur sett skorður á þrjá mótmælaviðburði gegn henni,“ segir í tilkynningu lögreglunnar.

Ungversk stjórnvöld bönnuðu gönguna í fyrra og hótuðu tugþúsundum þátttakenda sektum ef þeir sæjust í göngunni. Vel yrði fylgst með henni.

Segja má að þetta bann hafi sprungið í andlitið á Orban og öfgahægri stjórn hans. Um 200 þúsund manns mættu, langtum fleiri en nokkurn tíman áður. Fyrra met var um 35 þúsund manns.

Eins og flestir vita var stjórn Orban kolfelld í þingkosningum í vor og flokkur Magyar vann stórsigur og hreinan meirihluta. Magyar hefur heitið meira frjálslyndi í Ungverjalandi eftir mörg ár af afturhaldsstjórn Orban.

Evrópusambandið hefur þegar byrjað að losa fjármagn til Ungverjalands, sem hafði verið fryst út af spillingu og auknum ítökum ríkisstjórnarinnar í dómskerfinu.

„Þetta er rétta ákvörðunin,“ sagði Gergely Karacsony, borgarstjóri Búdapest, um ákvörðunina að leyfa gleðigönguna. „Þetta sýnir að þrátt fyrir kæfandi stjórnmálaástand undanfarinna fimmtán ára þá hefur frelsismenning Ungverjalands lifað af.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Sigurður Fannar var andlega kvalinn og átti erfitt með að horfast í augu við það sem hann hafði gert

Sigurður Fannar var andlega kvalinn og átti erfitt með að horfast í augu við það sem hann hafði gert
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

190 verkefni á verkefnalista meirihluta borgarstjórnar – Þessu ætlar hann að breyta í borginni

190 verkefni á verkefnalista meirihluta borgarstjórnar – Þessu ætlar hann að breyta í borginni
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Jón Viðar vill ekki raska grafarrónni á Þingvöllum: „Hvað gengur að þessu fólki?!!“

Jón Viðar vill ekki raska grafarrónni á Þingvöllum: „Hvað gengur að þessu fólki?!!“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Geymdi yfir 30 milljónir í peningaskáp í Hveragerði

Geymdi yfir 30 milljónir í peningaskáp í Hveragerði
Fréttir
Í gær

Hvalur hf vill að leyft verði að nota hvalkjöt í dýrafóður – Segja íslenskar reglur vera „gullhúðun“

Hvalur hf vill að leyft verði að nota hvalkjöt í dýrafóður – Segja íslenskar reglur vera „gullhúðun“
Fréttir
Í gær

Afhentu Alzheimersamtökunum 3.205.201 króna styrk

Afhentu Alzheimersamtökunum 3.205.201 króna styrk
Fréttir
Í gær

Stefán kennari biðlar til nýja meirihlutans: „Hnekkið þessari ákvörðun STRAX!“

Stefán kennari biðlar til nýja meirihlutans: „Hnekkið þessari ákvörðun STRAX!“
Fréttir
Í gær

Þetta verður síðasti opnunardagur Kjötborgar – „Takk!“

Þetta verður síðasti opnunardagur Kjötborgar – „Takk!“